Morgunútvarpið

Hildur slær í gegn í Finnlandi og erum við að borða of mikið?

Íslenska appið LifeTrack hefur á skömmum tíma aðstoðað þúsundir Íslendinga skilja betur næringuna sem þeir setja ofan í sig, þegar reglulegar fréttir berast af slæmu heilsufari þjóðarinnar. Hjónin Ingi Torfi Sverrisson og Linda Rakel Jónsdóttir settu LifeTrack í loftið fyrir ári síðan en fólk notar appið til fylgjast með því sem það borðar, passa máltíðir séu rétt samsettar og hversu mikið það á borða. Þau vilja meina fólk mögnuðum árangri bara með því skilja næringuna betur og við fengum Inga Torfa til fræða okkur um málið í beinni frá Akureyri.

Við horfðum til himins með Sævar Helga Bragasyni, Stjörnu-Sævari.

Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi benti á dögunum á niðurstöður frjálshyggjustofnunarinnar Cato um áhrif innflytjenda á Bandaríkin síðustu 30 ár. Meginniðurstaðan er innflytjendur styrki samfélög fjárhagslega og efnahagslega. Áhugaverðar niðurstöður í dag þegar umræðan um innflytjendur hefur sjaldan verið meira áberandi. Við heyrðum í Friðjóni.

Sjónvarpsþættirnir Hildur hafa slegið í gegn í Finnlandi og áhorfin á fyrstu vikunni þar í landi fóru yfir milljón. Þættirnir eru byggðir á metsölubók hinnar finnsku Satu Rämö, sem býr á Ísafirði en Ebba Katrín Finnsdóttir, Lauri Tilkanen og Rick Okon fara með helstu hlutverk. Við fengum til okkar leikstjórann Tinnu Hrafnsdóttur.

Stór íþróttahelgi baki, bikarkeppnin í körfubolta, ofurskálin og svo auðvitað vetrarólympíuleikarnir á Ítalíu þar sem bandaríska skíðakonan Lindsey Vonn datt í brautinni þegar hún reyndi við brunkeppnina á Vetrarólympíuleikunum með slitið krossband. Við fórum yfir íþróttirnar með Þorkeli Gunnari Sigurbjörnssyni sem staddur er á Ítalíu.

Birt

9. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,