Morgunútvarpið

12. mars - Portúgal, neytendur og landsleikur

Grettir Gautason, stjórnmálafræðingur, verður á línunni frá Portúgal í upphafi þáttar en þar féll ríkisstjórnin í gærkvöldi og þriðju kosningarnar á jafn mörgum árum yfirvofandi.

Um helgina verður opnað fyrir umsóknir Reykvíkinga um matjurtagarða í borginni. Um 600 matjurtagarðar eru leigðir út á vegum borgarinnar. Björk Þorleifsdóttir sem er fræðslustjóri Grasagarðsins kemur til okkar.

Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, ræðir við okkur um stefnu í neytendamálum til ársins 2030 sem er rædd innan veggja Alþingis.

Við heyrum í Óskari Hallgrímssyni sem er búsettur í Kyiv í Úkraínu.

Í nýrri stöðuuppfærslu Veðurstofunnar vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga segir Í ljósi vaxandi jarðskjálftavirkni samhliða áframhaldandi landrisi og kvikusöfnun er líklegasta sviðsmyndin þetta kvikusöfnunartímabil endi með kvikuhlaupi yfir í Sundhnúksgígaröðina og þar gjósi í áttunda skiptið frá því í lok árs 2023. Benedikt Ófeigsson jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofunni kemur til okkar.

Kári Kristján Kristjánsson, handboltamaður og spekingur, verður gestur okkar í lok þáttar en íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir því gríska í dag í undankeppni EM.

Frumflutt

12. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Hafdís Helga Helgadóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,