Breytti útliti sínu til að komast til Afrín
Vopnabræður Hauks Hilmarssonar, sem börðust með honum í Sýrlandi í fyrra, segja hann hafa fallið í Afrín-héraði í tyrknesku sprengjuregni.
Lesa umfjöllunFarsími og Signal: 869-7838
Þóra Arnórsdóttir var ritstjóri Kveiks fram til ársins 2023.
Vopnabræður Hauks Hilmarssonar, sem börðust með honum í Sýrlandi í fyrra, segja hann hafa fallið í Afrín-héraði í tyrknesku sprengjuregni.
Lesa umfjöllunUmræður um loftslagsmál og skuldbindingar Íslands í þeim efnum, enda iðulega á þessum nótum: Til hvers að standa í öllu þessu veseni – orkuskiptum og skógrækt og landgræðslu og að þróa græna tækni – ef 70 prósent af losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi koma frá framræstu landi?
Lesa umfjöllunÞað er búið að ræsa fram megnið af öllu votlendi á láglendi á Íslandi og frá þessu uppþurrkaða landi kemur megnið af þeim gróðurhúsalofttegundum sem Ísland losar.
Lesa umfjöllunVerð og framboð á alþjóðaflugi hefur verið afar hagstætt Íslendingum undanfarin ár. Hægt hefur verið að fljúga víða um heim fyrir lítið fé. Þessir tímar virðast vera að líða undir lok.
Lesa umfjöllunÞað virðast allir sammála um að tíminn sé loksins kominn – það á að rafbílavæða landið. Hljómar gáfulega - að nota innlendan orkugjafa í stað mengandi, innflutts jarðefnaeldsneytis og stuðla að því að Ísland nái markmiðum sínum í loftslagsmálum.
Lesa umfjöllunAf hátt í 270.000 fólksbílum hérlendis, eru 63 prósent bensínbílar, tæpur þriðjungur díselbílar, tæpt prósent rafbílar og afgangurinn annað. Samtals 267.647. Ef þetta verður þróunin munu orkuskipti í samgöngum ganga ákaflega hægt.
Lesa umfjöllunÞað er reglulega bent á að Ísland verði að fara að hysja upp um sig í loftslagsmálum, því nái ríkið ekki alþjóðlegum markmiðum um minni losun, þurfi að kaupa kolefniskvóta - og það gæti reynst dýrt spaug.
Lesa umfjöllunHellisheiðarvirkjun var gangsett síðla árs 2006. Skömmu síðar var byrjað að þróa verkefni sem gengur undir nafninu CarbFix. Hellisheiðarvirkjun, rétt eins og aðrar jarðvarmavirkjanir, blæs töluverðum koltvísýringi út í loftið með gufunni sem dælt er úr iðrum jarðar.
Lesa umfjöllunÍ Borgarholti í Kópavogi má víða sjá grágrýtishnullunga sem urðu eftir þegar ísaldarjökullinn hopaði fyrir 10.000 árum. Þá var Borgarholtið sker úti fyrir landi. Nú er það þriggja hektara hæð á miðju höfuðborgarsvæðinu, hluti af táknmynd Kópavogs - og friðlýst náttúruvætti frá 1981. Þar má engu raska. Með tveimur
Lesa umfjöllunÞessi listi er hluti af umfjöllun Kveiks um friðlýsingar. Hægt er að sjá þá umfjöllun hér.
Lesa umfjöllunUmhverfisráðherra telur koma til greina að skylda landeigendur til að stofna félög um land sem er í sameign. Ekki sé sanngjarnt að örfáir einstaklingar geti komið í veg fyrir að vilji allra hinna nái fram að ganga, til að mynda um hvort friðlýsa eigi svæði eða ekki.
Lesa umfjöllunUmhverfisráðherra segir koma til greina að greiða bændum fyrir vörslu verndaðs lands. Forstjóri Umhverfisstofnunar telur það geta liðkað mjög fyrir friðlýsingum.
Lesa umfjöllunFyrirkomulag skimunar fyrir krabbameini hefur verið til umræðu undanfarið, en þátttakan hefur minnkað undanfarinn aldarfjórðung og er komin undir lágmarksviðmið.
Lesa umfjöllunBarnaverndarmál hafa verið mjög til umræðu undanfarið misseri. Í nóvember fjallaði Kveikur um eitt slíkt mál - en það sem við vissum ekki þá, var að Barnaverndarstofa hafði skilað af sér afar harðorðum athugasemdum við vinnubrögð Barnaverndar Reykjavíkur í öðru máli, í byrjun september. Þar er málsmeðferð Barnaverndar Reykjavíkur beinlínis
Lesa umfjöllunUmfjöllunina sem um ræðir má sjá hér. „Símasamstæðan gerir athugasemdir við umfjöllun Kveiks þann 20. febrúar um stöðu á ljósleiðaramarkaði og fjölda rangfærslna sem þar birtust. Í fyrsta lagi þarf ekki að vera í internetviðskiptum við Símann til að nálgast efnisþjónustuna Símann Premium, eins og mátti skilja á umfjöllun Kveiks.
Lesa umfjöllun