Í fréttaskýringaþættinum Kveik í gær var velt upp þeirri spurningu hvort skólinn væri úreltur, hvort ekki sé kominn tími til að endurhugsa og breyta áherslum í menntakerfinu og öllum skólastigum með hliðsjón af nýjum tæknibyltingum. Við ætlum að ræða við Mjöll Matthíasdóttur, formann Félags grunnskólakennara, um hvort menntakerfið hafi sofnað á verðinum í upphafi þáttar.
Við höldum áfram að ræða átökin fyrir botni Miðjarðarhafs, í þetta skiptið ætlum við að ræða umtalsverð áhrif kínverskra stjórnvalda á svæðinu, en greinahöfundur tímaritsins Spectator sagði í vikunni að Kína hafi nú sýnt fram á getuleysi sitt til að miðla málum þar. Geir Sigurðsson, prófessor í kínverskum fræðum við Háskóla Íslands, verður á línunni.
Áskoranir þegar að kemur að orkuöryggi á Norðurlöndum hafa breyst að undanförnu, ekki síst í ljósi nýlegra atvika í Eystrasalti. Auk þess hefur ákall um umhverfisvæna orkualdrei verið meira. Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri kemur til okkar að ræða áskoranir í orkumálum Norðurlanda og hvar kunnátta íslendinga getur nýst vel.
Einn lést og tveir slösuðust í bruna sem varð í húsi við Funahöfða í fyrradag. Í húsinu hefur hópur fólks búið þó það sé skilgreint sem atvinnu- og skrifstofuhúsnæði. Brunavarnir voru þó ásættanlegar. Í ágúst sagði starfandi slökkvistjóri að staðan hefði versnað síðan slökkviliðið, HMS og ASÍ kortlögðu óörugga búsetu fólks árið 2021. Við ræðum við Finnbjörn A. Hermannsson forseta ASÍ um húsnæðisvandann.
Við ræddum í gær við Björn Kristjánsson, ráðgjafa hjá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, um bílastæðagjöld og hvort æskilegt sé að fara þá leið sem yfirvöld í París og Lyon eru að fara núna, að láta eigendur stærri bíla borga meira í bílastæðagjöld en eigendur lítilla bíla, með þeim rökum að þeir noti meira pláss og reyni meira á göturnar. Björn taldi að skoða mætti þetta hér á landi, en fyrir er deilt mikið um breytingar á bílastæðagjöldum í Reykjavíkurborg. Við ætlum að ræða þessi mál við Pétur Martein Urbancic Tómasson, formann íbúaráðs miðborgar og hlíða.
Er hægt að skapa list með gervigreind? Kallast það þá list eða kallast það eitthvað allt annað? Nú, hvað þá með verk eftir listamann sem notast við gervigreind sem verkfæri? Tröll Egils Sæbjörnssonar, Ugh og Bõögâr, hafa komið víða við en nú geta þau talað saman fyrir tilstilli gervigreindar sem Miðeind hefur ljáð verunum í samvinnu við Egil. Við heyrum í Agli.
Lagalisti:
FLEETWOOD MAC - Rhiannon (Will You Ever Win).
MAGNÚS ÞÓR & JÓNAS SIGURÐSSON - Ef ég gæti hugsana minna (Hljómskálinn).
Tatjana, Joey Christ - Gufunes