• 00:05:45Aðalsteinn Ásberg - föstudagsgestur
  • 00:21:13Aðalsteinn Ásberg - seinni hluti
  • 00:39:29Matarspjallið - sveskjur í mat og húsráð

Mannlegi þátturinn

Leyft öllum aldurshópum

Aðalsteinn Ásberg föstudagsgestur og matarspjall um sveskjur

Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni er Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson rithöfundur og tónlistarmaður. Hann hefur loks lokið að þýða Vísur Svantes, gríðarlega vinsælu bókina og lögin, eftir Benny Anderssen, verkefni sem hefur legið í skúffu hjá honum lengi. Verkið kemur út í bók og á nýjum hljómdiski Svante og haldnir verða tónleikar í Norræna húsinu og Hannesarholti af tilefninu. Aðalsteinn er uppalinn í sveit fyrir norðan en ætlaði sér aldrei að verða bóndi heldur ákvað snemma að verða rithöfundur. Við heyrum tvö lög af nýja diskinum og Aðalsteinn reynir að útskýra fyrir okkur af hverju svona margir tengja við Svante.

Svo er það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti en hún ætlar að ræða um sveskjur í mat, eitthvað sem hún hefur aldrei þolað en nú er spurning hvort það hafi breyst? Svo grípum við niður í Eldhúsbókinni en þar má finna ýmsan fróðleik sem nýttist húsmæðrum á sjöunda áratug síðustu aldar og sá fróðleikur eldest ekki allur vel.

Tónlist í þættinum í dag:

Woman / John Lennon (John Lennon)

Drykkjuvísur Svantes / Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson (Benny Andersen, þýð.texta Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson)

Hamingjudagur Svantes / Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson (Benny Andersen, þýð.texta Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,