Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 8.október 2026

Skáldið Anne Carson fær Nóbelsverðlaunin í bókmenntum í ár. Þar með eignuðust Íslendingar annan verðlaunahafa í þeirri grein, því hún er frá Kanada en er íslenskur ríkisborgari.

Fátt getur komið í veg fyrir að samningum VR og Fagfélaganna við Samtök atvinnulífsins verði sagt upp í dag segja viðmælendur fréttastofu.

Áform Bandaríkjanna á norðurslóðum og nýtt geimkapphlaup verða rædd á Hringborði Norðurslóða sem byrjar í dag.

Nær 700 bíða afplánunar og ljóst að hluti refsinga fyrnist verði ekkert að gert. Fangelsismaálastofnun fer fram á að fjárveitingar verði auknar um 280 milljónir á næsta ári.

Maricarmen Abascal lést í gær. Hún varð óvænt táknmynd húsnæðiskreppunnar á Spáni.

Áhrifa El Niño-veðurfyrirbærisins er þegar farið að gæta víða um heim. Veður- og loftslagsstofnun Sameinuðu þjóðanna varar við því þau nái hámarki í desember.

26 sveitarfélög hafa stofnað ný hagsmunasamtök til að efla íslenskan landbúnað. Formaðurinn segir fæðuöryggi þjóðarinnar í húfi á óvissutímum.

Og Ísland mætir Króatíu á morgun í undankeppni fyrir HM kvenna í fótbolta.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,