Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 7. október 2026

VR og fagfélögin eiga fund með Samtökum atvinnulífsins hjá Ríkissáttasemjara í dag en Breiðfylkingin - Starfsgreinasambandið, Efling, Samiðn og Byggiðn - sömdu í gærkvöld um að kjarasamningar við SA haldi áfram.

Stýrivextir standa óbreyttir í átta prósentum. Seðlabankastjóri vonast til að geta lækkað vexti á næsta ári.

Forseti og forsætisráðherra Frakklands héldu neyðarfund í gærkvöld vegna mótmæla nemenda sem hafa staðið í tvær vikur. Stjórnvöld hafa bannað notkun hvellsprengna tímabundið vegna slysa af þeirra völdum.

Samfylkingin og Framsókn í Suðurnesjabæ ræða saman eftir að meirihluti Samfylkingar og D-lista sprakk um helgina. Stjórnmálafræðingur segir að ágreiningur um gervigrasvöll gæti verið toppurinn á ísjakanum.

Þrjú ár eru síðan um 1.200 manns voru drepnir í árás Hamas á Ísrael, sem var kveikjan að stríðinu á Gaza. Enn eru gerðar árásir þar þrátt fyrir að vopnahlé hafi gilt í ár.

Framkvæmdir við smíði nýrrar brúar yfir Ölfusá eru á undan áætlun. Reiknað er með því að vegfarendur verði rukkaðir um 500 krónur fyrir staka ferð yfir brúnna.

Og yfir hundrað Íslendingar yfir fimmtugt taka þátt í evrópskri leikfimihátíð í vikunni.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,