Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 6. október 2026

Varnar- og öryggismál voru efst á baugi á fundum utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Íslands í dag. Marco Rubio sagði Ísland í lykilstöðu í vörnum og öryggi á norðurslóðum.

Utanríkisráðherra mælir fyrir frumvarpi um bókun 35 á Alþingi eftir hádegi. Formaður Miðflokksins segir óskiljanlega ákvörðun að setja málið á dagskrá.

Samtök atvinnulífsins eru í heita sætinu í dag, segir formaður Rafiðnaðarsambandsins. Samninganefndir Fagfélaganna, VR og LÍV samþykktu í gærkvöld heimild til að segja upp kjarasamningum. Fresturinn til þess rennur út eftir tvo daga.

Boðað var til samstöðufundar í Menntaskólann við Hamrahlíð til stuðnings þolendum kynferðisbrota. Nemendur segja bæði stjórnvöld og samfélagið sýna aðgerðaleysi í kynferðisbrotamálum.

Sundlaug sem hefur nýst til endurhæfingar um árabil á Sauðárkróki er lokuð. HSN segist ekki geta staðið undir rekstrinum vegna fjárskorts.

Bóksali segir marga veðja á að Haruki Murakami eða Margaret Atwood hljóti Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Tilkynnt verður um handhafa þeirra í vikunni.

Og íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir því eistneska ytra í dag.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,