Búið er að opna leikskóla í Grindavík og grunnskólinn verður settur í næstu viku. Skólastjóri samrekins grunn- og leikskóla í bænum segir þetta lykilinn að endurreisn Grindavíkur.
Að minnsta kosti fimmtán voru drepnir í margra klukkustunda loftárásum Rússlands á höfuðborg Úkraínu í nótt. Barnaspítali og fjöldi íbúðarhúsa skemmdist í árásunum.
Hagfræðingur segir horft fram hjá húsnæðismálum í umræðu um verðbólgu. Byggja þurfi meira af hagkvæmum íbúðum.
Fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts á baðlón á eftir að skila sér í hærra verði til neytenda, segja eigendur. Þetta gæti fækkað gestum verulega, sérstaklega hjá smærri baðlónum á landsbyggðinni.
Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu heldur áfram í dag. Tekin var skýrsla af brotaþola, sem var misþyrmt í húsi á Suðurlandi. Hann segir þátt margra hinna ákærðu mun stærri en þeir hafa lýst fyrir dómi.
Útlit er fyrir að almenningssamgöngur á Suðurlandi verði skertar verulega. Vegagerðin ber við fjárskorti.
Um 2.400 börn verða í leik- og grunnskólum Árborgar í vetur. Íbúum hefur fjölgað mikið síðustu ár og uppbygging skólahúsnæðis eftir því mikil.
Martin Hermannsson, lykilmaður í körfuboltalandsliðinu, segir að bæði hann sjálfur og liðið mættu vera í betra líkamlegu formi og fagnar því æfingaleik gegn Finnum.