22:05
Konsert
Mugison, Júníus Meyvant og Kælan Mikla á Airwaves 2020
Konsert

Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.

Í tilefni af því að Iceland Airwaves ? Live from Reykjavík er næsta laugardag, ætlum við í Konsert vikunnar að rifja upp þrenna tónleika frá Iceland Airwaves í fyrra, sem eingöngu var streymihátíð.

Í ár er Airwaves einskonar blendingur, streymi, en með gestum í sal. Bara eitt kvöld, 16 listamenn, 4 tónleikastaðir og svo verður þessu öllu streymt í samstarfi við RÚV. Í fyrra var bara streymi, engir gestir í sal, tekið upp á nokkrum vel völdum tónleikastöðum í Reykjavík og við ætlum að rifja upp þrenna frábæra tónleika frá Airwaves ? Live from Reykjavík í fyrra og hlustum á Mugison, Júníus Meyvant og Kæluna Miklu.

Var aðgengilegt til 04. nóvember 2022.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,