16:05
Síðdegisútvarpið
4.nóv
Síðdegisútvarpið

Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

144 greindust með COVID-19 í gær. Svo margir hafa ekki greinst innanlands síðan í byrjun ágúst. Aðeins tvisvar áður hafa svo margir greinst á einum degi. Fimmtíu greindust á Akranesi. En hvað er til ráða. þarf að herða enn frekar á reglum hér innanlands til þess að við getum kannski notið aðventunnar og jólanna. Þórólfur Guðnason svarar því í þættinum.

Borgarráð samþykkti í dag að stórauka fjárframlög til viðhalds og viðgerða á skólahúsnæði í borginni og verður 25-30 milljörðum varið til málaflokksins á næstu 5-7 árum. Samhliða voru kynnt drög að metnaðarfullri nýrri stefnu í húsnæðismálum fyrir skóla- og frístundastarf í anda menntastefnunnar Látum draumana rætast og Græna plansins, framtíðarsýn um sjálfbæra borg. Þetta hljóta að teljast tíðindi miðað við að hallarekstur borgarinnar en borgin verður rekin með 3, 4 milljarða króna halla á næsta ári samkvæmt fjárhagsáætlun sem var kynnt í vikunni. Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og formaður skóla- og frístundaráðs hjá Reykjavíkurborg kemur til okkar í þáttinn.

Það er nóg að gera hjá Jóni Gnarr þessa dagana. Nýjasta bók hans Ó-orð er komin út. Bókin inniheldur íslensk orð sem Jóni þykir léleg. Jón er einnig fluttur til Akureyrar amk í nokkra mánuði því þar er verið að setja upp sýninguna Skugga Sveinn og fer Jón Gnarr með aðal hlutverkið í þeirri sýningu. Við heyrum í honum í þættinum.

Jap­ansk­ir vís­inda­menn hafa skoðað það gaum­gæfi­lega, hvað ger­ist þegar þú borðar ís á morgn­ana og niður­stöðurn­ar urðu furðu já­kvæðar. Þeir mældu heila­virkni fólks sem borðaði ís í morg­un­mat og báru sam­an við þá sem fengu eng­an ís. Þeir sem snæddu ís­inn, sýndu betri viðbragðstíma og gátu unnið bet­ur úr upp­lýs­ing­um en hinn hóp­ur­inn. Á sama tíma voru ísneyt­end­ur með fleiri hátíðni alfa-heila­bylgj­ur sem tengj­ast betri at­hygli. Anna Svava Knútsdóttir leikkona og ísbúðareigandi kemur til okkar og ræðir þessar jákvæðu niðurstöður um ísát.

Íslensk þáttaröð Dagur í líf er um líf fólks sem býr við skerta starfsgetu og/eða líkamlega fötlun af ýmsum toga. Í þáttunum fylgjumst við með fólki á öllum aldri, víða um land, í ýmsum störfum og með ólíka fötlun og fjölskyldugerð. Elín Sveinsdóttir er aðalmanneskjan í framleiðslu þessara þátta sem nú eru sýndir á ruv á sunnudagskvöldum við heyrum í henni.

Nú eru rauðar flíspeysur björgunarsveitarfólks orðnar áberandi í verslunarmiðstöðvarkjörnum og miðstöðvum og einn sjást þær stundum í Ríkinu höfum við heyrt. Ástæðan er sú að nýr neyðarkall er mættur. Neyðarkall björgunarsveitanna á sér orðið la

Var aðgengilegt til 04. nóvember 2022.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,