14:03
Sígild og samtímatónlist
Sígild og samtímatónlist

Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.

Tónlistin í þættinum:

Annar þáttur, Dumka - Andante con moto úr Píanókvintetti Nr. 2 í A-dúr, op. 81 (B. 155) eftir Antonin Dvorák. Pavel Haas kvartettinn leikur (Veronika Jarůšková,fiðla; Marek Zwiebel, fiðla; Radim Sedmidubský, víóla; Peter Jarůšek, selló); Boris Giltburg, píanó). Útgefið á plötunni Dvorak: Quintets Op. 81 & 97 árið 2023.

Fjórar Mazúrkur úr op. 50 eftir Karol Szymanowski. (nr. 13, 14, 15 og 16). Krystian Zimerman leikur á píanó. Upptökur fóru fram í tónlistarhúsinu í Fukuyama borgar í Japan. Útgefið á plötunni Karol Szymanowski - Piano Works árið 2022.

Tree line eftir Toru Takemitsu. Ísafold kammersveit leikur undir stjórn Daníels Bjarnasonar. Útgefið á plötunni Ísafold kammersveit árið 2006.

Erschüttre dich nur nicht verzagte Seele, aría úr kantötunni Was Gott tut das ist wohlgetan BWV 99 eftir Johann Sebastian Bach. Makato Sakurada tenór syngur með Bach Collegium í Japan, Masaaki Suzuki stjórnar. Útgefið á plötunni Cantatas - Vol. 25 árið 2004.

Fyrsti þáttur, Allegro molto úr Sinfóníu nr. 1 í D-dúr eftir Charles Gounod. Yan Pascal Tortelier stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands sem leikur, leiðari er Sigrún Eðvaldsdóttir. Útgefið á plötunni Gounod symphonies árið 2019.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
,