18:10
Spegillinn
Skautun kjósenda og orðalag spurningar í atkvæðagreiðslu um Evrópusambandsviðræður

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Sjálfstæðisflokkurinn er ótvíræður sigurvegari sveitarstjórnarkosninganna um helgina og í dag hefur ítrekað verið talað um að Hildur Björnsdóttir, oddiviti í Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, sé með öll spil á hendi þar. En aðrir flokkar geta víða vel við unað, meðal annars flokkar sem eru lengra til hægri eða vinstri en verið hefur um langa hríð. Gengi flokka í höfuðborginni virtist skiptast mjög eftir hverfum. Ingólfur Bjarni Sigfússon ræddi við Viktor Orra Valgarðsson, aðjúnkt í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.

Hver er munurinn á því að bera upp spurninguna á að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið eða spyrja á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu? Meirihluti utanríkismálanefndar vill eftir athugasemdir orða spurninguna þannig að talað sé um að hefja á ný en ekki halda áfram. Rætt við Pawel Bartozek (C) og Sigurð Inga Jóhannsson um orðalag og tímaramma og líka úrslit sveitarstjórnarkosninga.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 20 mín.
,