07:03
Morgunvaktin
Kosningaúrslit, evrópsk stjórnmál og samgöngur til Vestmannaeyja

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Spjallað var við Höllu Hrund Logadóttur, alþingismann Framsóknarflokks í Suðurkjördæmi, um samgöngur til og frá Vestmannaeyjum. Málið verður rætt á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í dag.

Farið var yfir kosningaúrslitin frá á laugardag með Sigurði Árnasyni sem heldur úti vefnum Kosningasaga. Stiklað var á stóru og eitt og annað forvitnilegt dregið fram.

Í spjalli um evrópsk stjórnmál sagði Björn Malmquist, fréttamaður í Brussel, m.a. frá aðildarferli Svarfjallalands að Evrópusambandinu, stjórnarslitum í Lettlandi, kosningum á Möltu og stöðunni fyrir frönsku forsetakosningarnar á næsta ári.

Byggðalistinn var sigurvegari kosninganna í Skagafirði. Rætt var við Eyþór Fannar Sveinsson oddvita.

Borgarbyggðarlistinn í Borgarbyggð fékk góða kosningu. Rætt var við Jovönu Pavlovic oddvita.

Tónlist:

Enya - Caribbean blue - Enya,

Kjærlighetsvisa - Haldvda Sivertsen.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,