Meining

Mölturiddarar

„Þetta er elsta riddararegla í heimi,“ segir Hreinn Líndal, einn íslensku Mölturiddaranna en þeir eru átta talsins, sjö karlmenn og ein kona. Þau tilheyra hinni kaþólsku Möltureglu, sem er frábrugðin flestum öðrum kaþólskum trúarreglum því leyti hún er alþjóðlegur lögaðili, gefur út sín eigin vegabréf, frímerki, númeraplötur og mynt. Möltureglan er með sendiráð í 115 ríkjum, sendiherra hjá Evrópusambandinu og áheyrnarfulltrúa í Sameinuðu þjóðunum. Það er gjarnan talað um hana sem hálffullvalda þjóðréttaraðila enda ríki án íbúa og eiginlegs landsvæðis.

Í þættinum er fræðst um Mölturiddarana, sem og athyglisverðan feril Hreins. Hann er óperusöngvari, rak um sinn tískuhúsið H. Líndal og um klæða Vigdísi Finnbogadóttur fyrstu árin hennar í forsetaembætti í samstarfi við ítalska tískurisa eins og Valentino.

Við sögu kemur Ronald Reagan, dýrlingurinn Padre Pio, mannúðaraðstoð, kraftaverkin í Lourdes, systur Trumps, Mary Higgins Clark og ýmislegt fleira.

Birt

18. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Meining

Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.

Þættir

,