Meining

Leikmenn

„Að mínu áliti er kirkjan heilög. Þrátt fyrir það séu til slæmir prestar, slæmir biskupar og það hafi verið mjög slæmir páfar í gegnum tíðina þá er kirkjan sjálf heilög. Ef hún væri það ekki, þá væri ég ekki í henni,’’ segir Jónas Sen, tónlistarmaður, gagnrýnandi og leikmaður í leikmannareglu Karmels í þætti dagsins.

Í þættinum skoðum við leikmannareglunna nánar. Þegar talað er um leikmenn kaþólsku kirkjunar er átt við venjulegt kaþólskt fólk sem lifir sínu hefðbundna lífi utan kirkjunnar en kýs fylgja andlegum reglum ákveðinna trúarreglna kirkjunnar. Hér á Íslandi finnum við leikmannareglu Karmels sem leikmenn eru vígðir í inn með formlegum hætti, brúnt herðaklæði í anda Karmelreglunnar og strengja ákveðin trúarleg heit. „Maður lofar lifa í innri fátækt, ánetjast ekki auðum og völdum. reyna vera í ákveðinni fjarlægð frá lífsgæðakapphlaupinu,“ segir Jónas um eitt af fornu loforðunum, en hann hefur verið í reglunni í rúman áratug.

Rætt er við tvo leikmenn í reglunni, fyrirbæri eins og tíðabænir koma við sögu, einnig íslenskt-kaþólskt snjallsímaforrit, lesleiðbeiningar frá Róm og merkingarmyndun í kjölfar áfalla.

Birt

30. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Meining

Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.

Þættir

,