Meining

Dauðasynd

Sumir mega eta blóð og hold Krists, sameinast honum, öðlast eilíft líf. Aðrir ekki. Í þessum þætti er leitast við skilja hverjir það eru sem mega meðtaka altarissakramentið og hverjir ekki. Flókinn syndalisti kaþólsku kirkjunnar er skoðaður, sér í lagi tvö brot á trúarritningunni sem teljast til alvarlegra synda, annars vegar samkynhneigðir sem lifa „virku hinsegin lífi“ og hins vegar fráskildir sem komnir eru í sambönd.

Kaþólska kirkjan, á Íslandi sem og annars staðar, gerir sérstakan greinarmun á þeim sem hneigjast til samkynhneigðar og þeirra sem iðka hana. Samkynhneigðir mega sum meðtaka altarissakramentið, svo lengi sem þeir eiga sér ekki samkynja ástarlíf. Jakob Rolland, prestur, kanslari og fjölmiðlafulltrúi kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, útskýrir málið nánar. Hann segir kirkjan sömuleiðis vonist til samkynhneigðir breyti sér með tímanum og bætir við hún veiti þeim aðstoð.

Birt

2. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Meining

Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.

Þættir

,