Meining

Íslenskar nunnur III.

Áfram er fjallað um þær íslensku konur sem gerðust kaþólskar nunnur á síðustu öld. Þáttastjórnanda bárust forvitnilegar ábendingar um systur Stanislaus (f. Guðrún Una Gísladóttir, 1912-1956). Líf hennar er því til skoðunar í þætti dagsins. „Sumir segja hún hafi verið dálítið þung á bárunni, erfið í viðkynningu, jafnvel skapstór,“ segir í sögu Jósefssystra eftir Ólaf H. Torfason. Rætt er við þrjár konur sem þekktu systur Stanislaus. Allrahanda minningar skjóta upp kollinum sem og svör við stórum spurningum, eins og: Hvers vegna gekk hún í klaustur?

Við sögu kemur húsbruni, sígarettukarton, látinn unnusti, Gauksstaðir, Jósefína á Nauthóli, köld egg, líkkistur sem liggja þétt í Landakotskirkjugarði og ýmislegt fleira.

Viðmælendur: Guðrún Jóna Sigurjónsdóttir, Unnur Þorsteinsdóttir og Hjördís Sveina Sigurgeirsdóttir.

Birt

11. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Meining

Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.

Þættir

,