Meining

Pentecostés

„Við erum eins og eiginkonur Guðs,“ segir systir María de Pentecostés og bendir á gullhring á baugfingri vinstri handar. „Okkur langar gefa Guði allt okkar líf.“ Við kynnumst systur Pentecostés í þættinum en hún er postulleg Maríusystir við St. Jósefskirkju sem tilheyrir reglunni Þernur drottins og Maríu meyjar frá Matará. Systurnar eru rúmlega 1200 í meira en 35 löndum víðs vegar um heiminn. Þær klæðast gráum kyrtli, skærbláum herðaklæðum og blárri blæju.

Heilög Teresa af Avíla kemur sömuleiðis fyrir í þættinum, Maríusystur á samfélagsmiðlum, nun core-kvikmyndir, Black Narcissus, tónlistarkonan Rósalía og sitthvað fleira.

Birt

9. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Meining

Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.

Þættir

,