Meining

Íslenskar nunnur II.

Seinni þáttur um íslenskar nunnur eftir siðaskipti. Clementia yngri (Svanlaug Guðmundsdóttir) var kennari við Landakotsskóla í 35 ár, vann náið með séra Georg og Margréti Müller og Riftún, sumarbúðir kaþólsku kirkjunnar, voru sérstakt hugðarefni hennar. „Þegar þú ert í kristinfræði þá er verið tala um þetta góða og þetta fallega. Mér fannst hún akkúrat vera þetta fallega, af því ég var auðvitað í skólanum og það var misjafnt hvernig það var,“ segir Ása Ásgrímsdóttir um Clementiu. Ása er fyrrum nemandi hennar og ein þeirra sem á erfiða reynslu baki.

Klæðaburður nunna, vistaverur Jósefssystra, samspil miðilsgáfu og kristinnar trúar, gamlar hljóðupptökur, og Landakotsskóla-málið er meðal þess sem kemur við sögu í þættinum.

Rætt er við skyldmenni systur Clementiu, þær Zítu Benediktsdóttur og Sigríði (Sirrý) Sigurðardóttur, og Ásu Ásgrímsdóttur, sem var nemandi í Landakotsskóla.

Birt

27. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Meining

Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.

Þættir

,