Meining

Kirkja hins heilaga kross II

Kaþólski söfnuðurinn á Suðurlandi hefur verið án eiginlegrar kirkju í meira en áratug, flakkað úr einu leiguhúsnæði í annað og heldur um þessar mundir messur sínar í tveggja hæða íbúðarhúsi við Smáratún 12 á Selfossi sem kirkjan festi kaup á fyrir nokkrum árum. „Þetta er stærstum hluta fólk sem er fætt erlendis. Það er frá Póllandi, Litáen, Filippseyjum, spænskumælandi löndum, Norðurlöndunum, Bandaríkjunum, alls staðar að,“ segir Ragnar Geir Brynjólfsson, sjálfboðaliði í kirkjunni og leikmaður í Karmelreglunni, um söfnuðinn sem er miklu leyti af erlendu bergi brotinn. Við kynnumst Ragnari og Maríu Geraldine Cuizon, eiginkonu hans, í þætti dagsins en María tekur líka virkan þátt í safnaðarstarfinu. Við sækjum messu í Smáratúni og heimsækjum sóknarprestinn, séra Mercurio Rivera, sem er frá Filippseyjum.

Einnig er fjallað um þekktar Maríubirtingar í kaþólskri hefð, sér í lagi sýn ungrar nunnu við Rue du Bac í París árið 1830, og rýnt í kraftaverkamedalíuna.

Birt

9. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Meining

Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.

Þættir

,