Meining
Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.
Í þættinum er haldið áfram að fjalla um hatursorðræðu og inntak slíkrar tjáningar skoðað nánar með hjálp lögfróðra. Velt er upp tilvikum þar sem ólík réttindi mætast, það er tjáningarfrelsi annars vegar og friðhelgi einkalífs, persónu og heimilis hins vegar.
Er markvissu eftirliti með hatursorðræðu sinnt? Rætt er við Gyðu Stefánsdóttur, aðstoðarsaksóknara hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, um það hvernig það lítur við lögreglunni.
Hvers konar ummæli eru það alvarleg að þau heimila takmörkun á tjáningarfrelsi? Hvers konar orðræðu er leyfilegt að bera á borð? Og hvenær gengur hún of langt? Halldóra Þorsteinsdóttir, héraðsdómari og dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, situr fyrir svörum. Þáttastjórnandi ber undir hana ummæli af netinu og fær hana til að rýna í með gleraugum laganna. Hilmar Hildar Magnúsarson, fyrrverandi formaður Samtakanna 78, og Björg Valgeirsdóttir, doktorsnemi við lagadeild í Lundi í Svíþjóð, segja einnig nánar frá niðurstöðu Mannréttindadómstóls í þýðingarmiklum dómi er varðar efnið.