16:05
Síðdegisútvarpið
Íslenski refurinn, Bíóklúbbur barnanna og framtíð Eurovision

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Miklar tafir hafa verið í dag á Suðurlandsvegi út frá Reykjavík vegna malbikunarframkvæmda við Hólmsá. Dæmi eru um að ökumenn hafi beðið þar í röð í um 40 mínútur. Kvartað er um að merkingum sé ábótavant þannig að umferð sé beint aðra leið. Vegagerðin hefur brugðist við með því að færa framkvæmdartímann fram á kvöldið og sagt umferðarþungann hafi komið þeim á óvart. G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúí Vegagerðarinnar var á línunni.

Málþing um íslenska refinn verður haldið þann 9. júní í Eddu, húsi íslenskunnar. Fjalla á meðal annars um vöktun íslenska refastofnsins, sérstöðu hans, erfðafræði og veiði. Tófan settist að á Íslandi í lok ísaldar, fyrir um það bil 10 þúsund árum, en hingað komst hún á hafís segir á Vísindavefnum. Ester Rut Unnsteinsdóttir, spendýrafræðingur á Náttúrufræðistofnun hefur vaktað og rannsakað tófuna um árabil. Hún fræddi okkur um íslenska refinn.

Eurovision-keppninni 2026 er lokið og Búlgaría sigraði í fyrsta sinn í sögu keppninnar. Það er óhætt að segja að umræður um keppnina hafa aldrei verið harðari því deilur um þátttöku ríkja, úrsagnir nokkurra þjóða og sterk pólitísk spenna settu mark sitt á keppnina í ár. En hvernig lítur framtíðin út þegar kemur að Eurovision keppninni ? Er Eurovision enn sameiningartákn Evrópu — eða orðið vettvangur pólitískra átaka? Við ræddum við Felix Bergsson, einn reyndasta Eurovision-sérfræðing landsins.

175 Ísland: Áfangastaðir í alfaraleið er einhver alvinsælasta ferðahandbók sem út hefur komið hér á landi. Bókin hefur margsinnis verið endurprentuð frá því hún kom fyrst út árið 2008 og reglulega endurskoðuð í samræmi við breytingar á áfangastöðunum og ferðaháttum landsmanna. Páll Ásgeir Ásgeirsson gönguhrólfur er höfundur bókarinnar hann kom til okkar.

Það má reikna með rafmagnaðri stemningu í Síkinu í kvöld þegar Tindastóll tekur á móti Grindavík í fjórða leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Grindvíkingar höfðu betur í fyrstu tveimur leikjunum, en Stólarnir svöruðu með sterkri frammistöðu á föstudagskvöldið í Grindavík eftir heldur brösótta byrjun í einvíginu. Við heyrðum í manni sem þekkir Síkið líklega betur en flestir. Sigurbjörn Árnason hefur starfað þar sem húsvörður í húsinu um árabil og sagði okkur frá þessum magnaða keppnisvelli og stemningunni sem skapast þar á stórum kvöldum sem þessum.

Í sumar fer af stað nýjung í tómstundastarfi fyrir börn á Höfuðborgarsvæðinu; Bíóklúbbur barnanna. Markmiðið með Bíóklúbbnum er að kynna börn fyrir töfrum kvikmyndagerðar á skemmtilegan og skapandi hátt og þannig virkja áhuga þeirra á faginu. Þau Júlíana Kristín Jónsdóttir, verkefnastjóri Bíóklúbbsins og Alexander Beck, komu til okkar.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,