
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Árni Þór Sigurðsson sendiherra leiðir formennsku Íslands í Eystrasaltsráðinu næsta árið. Hann kom á Morgunvaktina og sagði frá starfinu framundan og áherslunum.
Arthúr Björgvin Bollason sagði okkur tíðindi frá Þýskalandi. Þar hefur verið ólga í stjórnmálunum í sumar og líka í veðurfarinu, með ýmiss konar afleiðingum. Arthúr Björgvin talaði einnig um Johann Winckelmann, sem hafði gríðarleg áhrif á viðhorf Evrópubúa til forngrískrar menningar.
Sigríður Kristjánsdóttir, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, var síðasti gestur þáttarins og talaði um almyrkvann á morgun og mikilvægi þess að undrast, ekki síst yfir náttúrunni og náttúrufyrirbrigðum.
Tónlist:
Marína Ósk - In the wee small hours of the morning.
Katrine Madsen - Close to you.
Antonio Sanchez, Bela Fleck, Edmar Castaneda - Walnut and Western.
Katrine Jansson - August moon.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Við ræðum hvimleiðan og óboðinn gest sem dúkkar upp á sumum heimilum, oft um þetta leyti árs, og gengur undir nöfnum á borð við ediksgerla, bananafluga og ávaxtafluga. Jón Már Halldórsson, líffræðingur, kemur til okkar í spjall og við ræðum þessa uppáþrengjandi en merkilegu flugu, matarsmekk hennar, vísindalegt gildi og mögulegar leiðir til þess að losna við hana.
Í Bæjarperlum vikunnar er brugðið örlítið út af vananum en nú er heill fjörður tekinn fyrir og leiðin liggur um Önundarfjörð. Á Kirkjubóli í Valþjófsdal er rætt við Sigríði Magnúsdóttur, sem tók á móti kúnni Sæunni eftir að hún hafði synt rúma tvo kílómetra yfir fjörðinn árið 1987. Sigríður rifjar upp þennan merkilega dag og segir sögu Sæunnar.
Minning hennar lifir áfram í Sæunnarsundinu sem fer fram í lok mánaðar og í Sæunnarhaug, þar sem hún var heygð við sjávarkambinn á staðnum þar sem hún kom að landi.
Tónlist:
Campbell, Glen - Grow old with me.
Brimkló - Þjóðvegurinn.
Fjallabræður - Hæ vinur minn.
Stefán Hilmarsson - Svanir flugu suður.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Þularkynnt tónlist
Útvarpsfréttir.
Útlit er fyrir slæmt skyggni og rigningu víða um land þegar almyrkvi verður á sólu á morgun. Veðurfræðingur segir atburðinn alltaf upplifun, sama hvernig viðrar.
Alls sitja þrír í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn á andláti erlends manns á Kársnesi í Kópavogi á sunnudag.
Lögreglan á Suðurlandi hefur borið kennsl á mann sem lést í bílslysi á Þrengslavegi í lok júlí.
Bashar al-Assad, fyrrverandi forseti Sýrlands, var í morgun dæmdur til dauða fyrir sýrlenskum dómstóli.
Töluverður hafís er úti fyrir Vestfjörðum og Ströndum og útlit fyrir að borgarísjakar berist að ströndum landsins á næstunni. Stór íseyja hefur hringsólað á milli Vestfjarða og Grænlands síðsumars.
Fjármálaráðherra telur mjög líklegt að forsendur kjarasamninga bresti í haust. Hann segist ekki hafa meiri áhyggjur af nokkrum hlut en þróun verðbólgu og vaxta.
Minnst 132 fórust í jarðskjálfta í Kólumbíu í gær. Fólk er enn fast í húsarústum og björgunarmenn leita í rústunum, oft með handaflinu einu saman.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Í þættinum í dag er sagt frá afdrifum þýsk-bandaríska uppfinningamannsins og milljónamæringsins Georg Schrader sem dvaldi á Akureyri á árunum 1912 til 1915.
Í nóvember árið 1915 skaut Schrader sig á þilfarinu á síldarbátnum Helga Magra sem hann hafði fengið far með til Noregs. Fyrri heimsstyrjöldin var þá í fullum gangi og Schrader var illa haldinn af taugasjúkdómi.
Í þættinum í gær var sagt frá því hvernig Schrader birtist allt í einu á Akureyri árið 1912 og dvaldi þar í góðu yfirlæti á hóteli í þrjú ár. Nafn þessa manns er heimsþekkt vegna loftventilsins sem hann bjó til, Schrader-ventilsins. Þetta er útbreiddasti ventill í heimi og er notaður á reiðhjólum, bifreiðum, flugvélum og fleiri farartækjum.
Í þættinum í dag er fjallað um afdrif Georgs Schraders og brottför hans frá Íslandi árið 1915. Rætt er við Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóra og rithöfund, og Víði Gíslason flugmann sem er alinn upp á Akureyri.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Kristján Martinsson féll snemma fyrir tónlist og tilraunamennsku og var bráðungur í rappsveitinni Diplomatics, en sneri sér svo að ýmsum tilbrigðum af jazztónlist. Framan af ævinni átti hann erfitt með að gera upp á milli þverflautunnar og píanósins, en smám saman náði píanóið yfirhöndinni. Að því sögðu þá er hann enn að leita og vinnur nú að orgelplötu.
Reginfirra - Partý
Reginfirra (K Tríó) - Ons
Meatball Evening - Strokkur
Vindstig - Stormur
Stökk - Sýkill
Átta spunaverk - Impromtu Op.1 No.2
Átta spunaverk - Impromtu Op.1 No.7
1035 - Adagio ma non tanto
Óútgefið - II. Allegro - Live @ Orgelpark í Amsterdam
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Þriðji þáttur úr endurminningum Jónu Sigríðar Jónsdóttur, Ein á hesti, þar sem hún segir frá ævi sinni. Í þessum þætti er Jóna Sigríður komin um þrítugt og hefur fengist við margvísleg störf um ævina, en hún tekur nú að gerast mikil hestakona og kaupir og selur hross og fer í ýmsar svaðilfarir milli landshluta með hesta sína.
Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.
Í tilefni nýafstaðinna Hinsegin daga og Pride, verður hinseginleikinn þráður í þætti dagsins. Við erum með hugann við bókmenntir og kvikmyndir.
Við hefjum þáttinn á viðtali sem Kristján Guðjónsson tók við Örn Karlsson, myndlistamann og þýðanda. Þýðing Arnar á bókinni Villistrákar eftir William S. Burroughs kom nýverið út, en hún var áratugi í bígerð. Bókin segir frá dulrænum skæruher hömlulausra hinseginn ungmenna sem segja siðmenningu Vesturlanda stríð á hendur.
Kolbeinn Rastrick, kvikmyndafræðingur og gagnrýnandi, mælir með nokkrum höfuðverkum hinsegin kvikmyndasögu, og dregur fram þá hinsegin leikstjóra sem hafa skarað fram úr.
Að lokum heimsækir Pétur Magnússon bókabúðina í Hverafold í Grafarvogi, og fær bókameðmæli frá eiganda hennar Pétur Viðarsson.
Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti.
Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni: Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu?
Umsjón: Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime Plaza
Stjórn upptöku og samsetning: Helgi Jóhannesson
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen og Baldvin Þór Bergsson
Grafík: Kolbrún Þóra Löve
Ljósmyndun: Ragnar Visage
ATH: Hægt er að horfa á alla þættina í sjónvarpshluta spilarans
Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og Stefanía Kolbrún Ásbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins eru ósammála um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við ESB. Í þættinum er einkum rætt um efnahagsmálin, vexti, verðbólgu og kosti og galla þess að vera með krónu eða evru.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Ef innganga í Evrópusambandið yrði samþykkt verður að breyta ákvæðum i stjórnarskrá og leyfa framsal valds til þess; en það er flókið verkefni og alls ekki einhlítt hvernig að þvi yrði staðið segir Davíð Þór Björgvinsson lögfræðingur.
Danir vilja auka viðveru hers í Færeyjum – áforma æfingar, eftirlitsflug orrustuþotna og heimsóknir herskipa. Heini í Skorini, dósent í alþjóðastjórnmálum við Fróðskaparsetur Føroya, segir að atburðir þessa árs, einkum á Grænlandi, hafi breytt þessari sýn Færeyinga á varnarmál.
Úlfur hrellir íbúa á Suðvestur-Jótlandi, því hann hefur ítrekað birst í húsagörðum og við útiveitingahús.

frá Veðurstofu Íslands
Frá jazztónleikum á Jómfrúnni við Lækjargötu í Reykjavík. Í 30 ár hefur veitingastaðurinn staðið fyrir jazztónleikum á Jómfrúartorginu á hverjum laugardegi yfir sumartímann. Á meðal listamanna sem fram koma eru Tómas R. Einarsson, Silva Þórðardóttir, Anna Gréta Sigurðardóttir, Selma Björnsdóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir. Umsjón: Felix Bergsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Samantekt fyrir útvarp frá þremur sumartónleikum á Jómfrúnni.

Skáldsaga eftir norska höfundinn Tarjei Vesaas.
Heimir Pálsson þýddi, en lesari er Ingrid Jónsdóttir.
Sagan er samin um 1930. Hún segir frá fólki á býlinu Framnesi. Þar býr Ambos, rekur stóran hestabúgarð og ekur með ferðamenn um héraðið. Svörtu hestarnir hans eru honum kærari en flest annað. Ambros var ekkjumaður og á uppkomin börn, en hefur fyrir skömmu kvænst í annað sinn, ungri konu, Lísu. Þau eiga tvö ung börn, en Lísa er annarar gerðar en Ambros og samlagast ekki lífinu á bænum, yfir hjónabandinu hvílir skuggi sem markar allt fólkið á Framnesi.
Tarjei Vesaas var einn af helstu höfundum Norðmanna á tuttugustu öld. Hann fékk bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Klakahöllina, sem einnig hefur komið út í íslenskri þýðingu.
Sagan er 18 lestrar.


frá Veðurstofu Íslands
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Við ræðum hvimleiðan og óboðinn gest sem dúkkar upp á sumum heimilum, oft um þetta leyti árs, og gengur undir nöfnum á borð við ediksgerla, bananafluga og ávaxtafluga. Jón Már Halldórsson, líffræðingur, kemur til okkar í spjall og við ræðum þessa uppáþrengjandi en merkilegu flugu, matarsmekk hennar, vísindalegt gildi og mögulegar leiðir til þess að losna við hana.
Í Bæjarperlum vikunnar er brugðið örlítið út af vananum en nú er heill fjörður tekinn fyrir og leiðin liggur um Önundarfjörð. Á Kirkjubóli í Valþjófsdal er rætt við Sigríði Magnúsdóttur, sem tók á móti kúnni Sæunni eftir að hún hafði synt rúma tvo kílómetra yfir fjörðinn árið 1987. Sigríður rifjar upp þennan merkilega dag og segir sögu Sæunnar.
Minning hennar lifir áfram í Sæunnarsundinu sem fer fram í lok mánaðar og í Sæunnarhaug, þar sem hún var heygð við sjávarkambinn á staðnum þar sem hún kom að landi.
Tónlist:
Campbell, Glen - Grow old with me.
Brimkló - Þjóðvegurinn.
Fjallabræður - Hæ vinur minn.
Stefán Hilmarsson - Svanir flugu suður.
Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.
Í tilefni nýafstaðinna Hinsegin daga og Pride, verður hinseginleikinn þráður í þætti dagsins. Við erum með hugann við bókmenntir og kvikmyndir.
Við hefjum þáttinn á viðtali sem Kristján Guðjónsson tók við Örn Karlsson, myndlistamann og þýðanda. Þýðing Arnar á bókinni Villistrákar eftir William S. Burroughs kom nýverið út, en hún var áratugi í bígerð. Bókin segir frá dulrænum skæruher hömlulausra hinseginn ungmenna sem segja siðmenningu Vesturlanda stríð á hendur.
Kolbeinn Rastrick, kvikmyndafræðingur og gagnrýnandi, mælir með nokkrum höfuðverkum hinsegin kvikmyndasögu, og dregur fram þá hinsegin leikstjóra sem hafa skarað fram úr.
Að lokum heimsækir Pétur Magnússon bókabúðina í Hverafold í Grafarvogi, og fær bókameðmæli frá eiganda hennar Pétur Viðarsson.
Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti.
Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni: Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu?
Umsjón: Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime Plaza
Stjórn upptöku og samsetning: Helgi Jóhannesson
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen og Baldvin Þór Bergsson
Grafík: Kolbrún Þóra Löve
Ljósmyndun: Ragnar Visage
ATH: Hægt er að horfa á alla þættina í sjónvarpshluta spilarans
Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og Stefanía Kolbrún Ásbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins eru ósammála um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við ESB. Í þættinum er einkum rætt um efnahagsmálin, vexti, verðbólgu og kosti og galla þess að vera með krónu eða evru.

Útvarpsfréttir.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Þriðjudagsþemað var á sínum stað, Kalla var í göngutúr með hundinn sinn Tíru um Elliðárdalinn og að hlusta á Morgunverkin, hún hringdi inn og lagði til að þemað yrði fuglar. Ekki slæm hugmynd það. Leikarinn, handritshöfundurinn, bareigandinn og nú trommarinn, Björn Hlynir kom í kaffi. Hann trommar bara lög Jimi Hendrix!
Lagalisti þáttarins:
NÝDÖNSK – Lærðu Að Ljúga
PETER CETERA – Glory of Love (Theme From "The Karate Kid Part Two")
WARMLAND – Violet Dreams
STEINUNN JÓNSDÓTTIR – Spóla til baka
U2 – Songs Of The Future
DEATH CAB FOR CUTIE – Soul meets body
PORTUGAL THE MAN – Feel It Still
MR. MISTER – Kyrie
KACEY MUSGRAVES – I Believe In Ghosts
PELICAN – Jenny darling
BOB MARLEY & THE WAILERS – Three Little Birds
BUBBI MORTHENS – Gaukur Í Klukku
STEVE MILLER BAND – Fly Like An Eagle
OASIS – Songbird
FLEETWOOD MAC – Albatross
LYNYRD SKYNYRD – Free bird
BILLIE EILISH – Birds of a Feather
A FLOCK OF SEAGULLS – I Ran (So Far Away)
FATBOY SLIM – Sunset (Bird Of Prey)
FLAMINGOS – I Only Have Eyes For You
200.000 NAGLBÍTAR – Lítill Fugl
THE BEATLES – Blackbird
GRAFÍK – Bláir fuglar
SUPERGRASS – Mansize Rooster
HIPSUMHAPS – Meðal mannsins (þjóðsöngurinn)
JIMI HENDRIX – Crosstown Traffic
QUEENS OF THE STONE AGE – Little sister
ÁSGEIR TRAUSTI EINARSSON – Heartbeat
RED HOT CHILI PEPPERS – Californication
ELVIS PRESLEY – Don't be cruel
NAUGHTY BY NATURE – Hip hop hooray
KC AND THE SUNSHINE BAND – Get down tonight
SUEDE – She's In Fashion
PETER GABRIEL – Steam
QUARASHI – Do it again
GORILLAZ – Stylo
TAYLOR SWIFT – I Knew It I Knew You
DAFT PUNK & JULIAN CASABLANCAS – Instant Crush

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Útlit er fyrir slæmt skyggni og rigningu víða um land þegar almyrkvi verður á sólu á morgun. Veðurfræðingur segir atburðinn alltaf upplifun, sama hvernig viðrar.
Alls sitja þrír í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn á andláti erlends manns á Kársnesi í Kópavogi á sunnudag.
Lögreglan á Suðurlandi hefur borið kennsl á mann sem lést í bílslysi á Þrengslavegi í lok júlí.
Bashar al-Assad, fyrrverandi forseti Sýrlands, var í morgun dæmdur til dauða fyrir sýrlenskum dómstóli.
Töluverður hafís er úti fyrir Vestfjörðum og Ströndum og útlit fyrir að borgarísjakar berist að ströndum landsins á næstunni. Stór íseyja hefur hringsólað á milli Vestfjarða og Grænlands síðsumars.
Fjármálaráðherra telur mjög líklegt að forsendur kjarasamninga bresti í haust. Hann segist ekki hafa meiri áhyggjur af nokkrum hlut en þróun verðbólgu og vaxta.
Minnst 132 fórust í jarðskjálfta í Kólumbíu í gær. Fólk er enn fast í húsarústum og björgunarmenn leita í rústunum, oft með handaflinu einu saman.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Fjarskiptastofa hvetur fjölmiðla til að minna ferðalanga á tvö mikilvæg atriði á ferð um landið, sérstaklega á afskekktum svæðum þar sem fjarskiptainnviðir geta verið viðkvæmir. Það væri frábært ef þetta væri áréttað í fréttavaktinni á sólmyrkvadaginn sjálfan og haldið á lofti fram eftir degi eftir því sem nær dregur almyrkvanum. Við heyrðum í Ólafi Aðalsteinssyni, sviðstjóra fjarskiptainnviða hjá Fjarskiptastofu.
Við tókum stöðuna hjá Lögreglunni á Suðurnesjum vegna umferðastýringa á morgun vegna Almyrkvans. Arnar Steinn Elísson, verkefnastjóri Almannavarna hjá Lögreglustjóranum á Suðurnesjunum var á línunni.
Og svo var það Jóhanni Hlíðar sem talaði við okkur beint frá Spáni þar sem hann fór yfir áhugaverðar fréttir úr sólinni.
Það var sagt frá því í fréttum í vikunni að skemmtiferðaskip hafi aldrei verið fleiri við landið en akkúrat núna í kringum Almyrkvann. Yfir 50 þúsund manns eru samtals um borð í skemmtiferðaskipum við landið og Landhelgisgæslan hefur væntanlega í nógu að snúast bæði hvað það varðar og almennt öryggi við landið. Auðunn f. Kristinsson er framkvæmdastjóri hjá Gæslunni og stýrir aðgerðum á morgun og við heyrðum í honum.
Á morgun verður bein útsending helguð almyrkva á sólu í Ríkissjónvarpinu og hefst útsending kl. eitt. Fréttamenn og dagskrárgerðarfólk er þessa stundina að koma sér fyrir á hinum ýmsu stöðum á landinu og einn þeirra er Sigurður Þorri Gunnarsson en hann er á Hellisandi hvar hann mun lýsa herlegheitunum í sjónvarpi allra landsmanna - við heyrðum í honum.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði, er Íslandsmeistari kvenna í golfi annað árið í röð en í það fimmta sinn í það heila. Þar með sló hún met föður síns, Björgvins Sigurbergssonar, sem vann titilinn fjórum sinnum. Hún fór beint í mót erlendis eftir að hafa tryggt sér titilinn á sunnudaginn. Við heyrðum í Guðrúnu Brá þar sem hún er stödd í Sviss á VP Bank Swiss Ladies Open.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Ef innganga í Evrópusambandið yrði samþykkt verður að breyta ákvæðum i stjórnarskrá og leyfa framsal valds til þess; en það er flókið verkefni og alls ekki einhlítt hvernig að þvi yrði staðið segir Davíð Þór Björgvinsson lögfræðingur.
Danir vilja auka viðveru hers í Færeyjum – áforma æfingar, eftirlitsflug orrustuþotna og heimsóknir herskipa. Heini í Skorini, dósent í alþjóðastjórnmálum við Fróðskaparsetur Føroya, segir að atburðir þessa árs, einkum á Grænlandi, hafi breytt þessari sýn Færeyinga á varnarmál.
Úlfur hrellir íbúa á Suðvestur-Jótlandi, því hann hefur ítrekað birst í húsagörðum og við útiveitingahús.
Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Lagalistinn
Haukur H - Með allt á hreinu.
INCUBUS - Drive.
Kacey Musgraves- I Believe In Ghosts.
Queens of the Stone Age - Make it with Chu.
This is Lorelei - Billy Came Back.
James - Laid.
Cage the Elephant - Beaches In Tennessee
Blossoms - Meet Me In Love.
Fontaines D.C. - Roman Holiday.
Leon Bridgers - Light the Way
Amadou & Mariam - Mon Cher (Sofi Tucker Remix)
Alissia, Anderson.Paak - Can't Get Enough
Ariana Grande - Hate That I Made You Love Me
Jónfrí x Lúpína - Endalaus framtíð
Overmono, John Holt - Knights In Shiny Prada
Daði Freyr - I'm Out and I Want To Go Home
Baxter Dury - Kubla Khan (Paul Epworth Remix)
Yungamli x Svarti - Pungur á klúbbnum

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Í Rokklandi vikunnar er skautað yfir ævi og feril Arethu Franklin sem ung að árum fékk viðurnefnið Queen of soul.