15:00
Elsku Whitney
Upphafið

Bandaríska stórstjarnan Whitney Houston skaust fram á sjónarsviðið um miðjan níunda áratug síðustu aldar og varð á skömmum tíma einn af vinsælustu skemmtikröftum veraldar. Tónlistarferill hennar spannar rúman aldarfjórðung en hún lést árið 2012, 48 ára að aldri.

Í fjórum þáttum fjallar Berglind María Tómasdóttir um feril og stormasamt lífshlaup Whitney Houston, áhrif hennar og arfleifð.

Bandaríska stórstjarnan Whitney Elisabeth Houston frá Newark í New Jersey skaust fram á sjónarsviðið um miðjan níunda áratug síðustu aldar og varð á skömmum tíma einn af vinsælustu skemmtikröftum veraldar. Sagt er tónlistarlegu uppeldi hennar. Foreldrarnir og nánustu ættingjar fengust við tónlist, en útgefandinn Clive Davis gerði hana að stjörnu.

Rætt er við Önnu Marsibil Clausen í þættinum.

Umsjón: Berglind María Tómasdóttir.

Er aðgengilegt til 09. október 2026.
Lengd: 48 mín.
e
Endurflutt.
,