14:03
Djassland
Andrés Þór: vínillinn, banjóin og allt hitt

Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.

Pétur Grétarsson ræðir við Andrés Þór Gunnlaugsson gítarleikara um nýja plötu hans - Relocate, sem var að koma út hjá norsku útgáfunni Losen Records.

Þeir fara einnig yfir farinn veg Andrésar á langtímastefnumóti hans við gítarana og djassmúsíkina.

Tónlistin er öll eftir Andrés af nýju plötunni:

Relocate

Is it me, is it you

Tuesday morning coffee

Grace on high

Nico Moreaux leikur á kontrabassa og Magnús Trygvason Elíassen á trommur með Andrési sem mundar rafgítar, nælonstrengja kassagítar og pedal steel gítar á þessari plötu.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 56 mín.
,