Synir meistara Bachs

Fyrsti þáttur - Wilhelm Friedeman

Elsti sonur Johanns Sebastians hlaut frábæra tónlistarmenntun frá blautu barnsbeini. Faðir hans kenndi honum hljóðfæraleik og tónsmíðar og samdi fyrir hann verk sem enn eru leikin bæði af nemendum og fullnuma hljóðfæraleikurum. Wilhelm Friedemann stundaði nám í stærðfræði, lögfræði og heimspeki í Háskólanum í Leipzig um nokkurra ára skeið áður en hann varð organisti í Soffíukirkjunni í Dresden árið 1733. Hann flutti sig um set árið 1746 og tók við organistastöðunni í Liebfrauen-kirkjunni í Halle (hann er stundum kallaður Halle-Bach). Átján árum síðar gafst hann upp á yfirboðurum sínum þar og gegndi engri fastri stöðu upp frá því. Síðustu æviár sín bjó hann í Berlín við síversnandi kost og lést lokum örsnauður frá bjargræðislausri eiginkonu og dóttur. Wilhelm Friedemann var miklum tónlistargáfum gæddur og var álitinn fremsti organisti og spunameistari síns tíma. Hann spilaði þó ekki vel úr spilum sínum og er eitt af átakanlegustu dæmum tónlistarsögunnar um mann sem aldrei náði virkja hæfileika sína til fullnustu. Tónlistin sem eftir hann liggur er þó afar áhugaverð og persónuleg. Hún ber vitni um frábæra þekkingu hans á kontrapunkti barokksins en var einnig fyrirboði um rómantíska tónlist nítjándu aldar.

Fuga a 3 soggetti, BWV 1080119 úr Kunst der Fuge) (brot) -Johann Sebastian Bach - Robert Hill semball

Sembalsónata i a-moll, F. nv8n l. kafli (Poco allegro) (brot) - Wilhelm Friedemann Bach - Christophe Rousset semball

PrelúdIa nr. 1, BWV 846 (brot) -Johann Sebastian Bach - Joseph Payne semball

Allemande, BWV 836 (brot) -Johann Sebastian Bach - Joseph Payne klavikord

Sinfónia I F-dúr, F. S7, l. kafli (Vivace) (brot) -Wilhelm Friedemann Bach -Akademie für Alte Musik Berlin

Lasset uns ablegen, F. 80, 1. kafli (brot) -Wilhelm Friedemann Bach -Rheinische Kantorei og Das Kleine Konzert;

stj6rnandi: Hermann Max

Wir, Ghristenleut -Wilhelm Friedemann Bach - Marie-Claire Alain orgel

Konsert f. tvo sembala I Fdúr, F. 10, 1. kafli (Allegro moderato) - Wilhelm Friedemann Bach - Attilio Cremonesisemball og Allessandro de Marchi semball

Triósónata f. 2 flautur og fylgirödd, F. 47, 3. kafli (Allegro assai) - Wilhelm Friedemann Bach - Valerie Balsea flauta, Jean-Pierre Pinet flauta, Hager Spaeter-Hanana selló og Blandine Rannou semball.

Konsert f. sembal og hljómsveit i e-moll, F . 43, 1. kafli (Allegretto) - Wilhelm Friedemann Bach -Michael Behringer fortepianó og Barokksveitin i Freiburg;stjórnandi: Gottfried von der Goltz

Pólónesa i d-moll, F.12/4 -Wilhelm Friedemann Bach - Harald Hoeren fodepianó

Birt

23. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Synir meistara Bachs

,