Það er ekki að ófyrirsynju að níundi og næst yngsti sonur Johanns Sebastians er oft kallaður Bückeburg-Bach. Hann starfaði nefnilega allan sinn feril við furstahirðina í þessari litlu borg í Neðra-Saxlandi, hálfan fimmta tug ára. Þar lék hann á sembal og stjórnaði hirðhljómsveitinni, sem þótti ein sú besta í Þýskalandi, og samdi hljómborðsverk, bæði fyrir byrjendur og lengra komna, tríósónötur, sinfóníur, veraldlegar og kirkjulegar kantötur og óratóríur, m.a. í samvinnu við skáldið og heimspekinginn Johann Gottfried Herder, einn af guðfeðrum þýsku rómantíkurinnar. Johann Christoph Friedrich naut þess, eins og eldri bræður hans, að hafa gengið fyrstu skrefin á tónlistarbrautinni við hlið föður síns. Hann átti afar auðvelt með að tileinka sér ýmiskonar stíleinkenni, eftir því sem aðstæður og smekkur kröfðust, en fetaði líka gjarna ótroðnar slóðir í tónlist sinni. Veigamikill hluti af æviverki hans glataðist í seinni heimsstyrjöldinni en þó hafa nógu mörg verka hans varðveist til að hægt sé að gera sér góða grein fyrir framlagi hans til tónlistarinnar. Í minningarorðum sem voru rituð um Johann Christoph Friedrich var hann sagður hafa verið vinnusamur tónsmiður, ætíð til þjónustu reiðubúinn, heiðvirður maður og hjartahlýr. Sonur hans, Wilhelm Friedrich Ernst Bach, var eina barnabarn Johanns Sebastians sem náði frama í tónlist og síðasti fulltrúi Bach-ættarinnar sem lét að sér kveða á því sviði.
Fughetta über H.C.F.B.B.A.C.H. - Johann Christoph Friedrich Bach -Marie-Claire Alain orgel
Sónata í E-dúr f. tvær flautur og
fylgirödd, 1. kafli (Allegretto) - Carl Philipp Emanuel Bach - Valerie Balssa flauta, Jean-Pierre Pinet flauta, Hager Spaeter-Hanana selló og Blandine Rannou - semball
Þriggja radda ricercar úr Tónafórninni - Johann Sebastian Bach - Michael Behringer fortepianó
Úr kantötunni Cassöndru-Johann Chrietoph Friedrich Bach - Lena Susanne Norin alt og Das Kleine Konzert; stjórnandi: Hermann Max
Sinfónia I Bdúr,3. kafli(Allegro assai) - Johann Christoph Friedrich Bach - Neues Bachisches Collegium Musicum ; stjórnandi:Burkhard Glaetzner
Sellósónata i Adúr, 1. kafli (Larghetto) - Johann Christoph Friedrich Bach - Anner Bylsma violoncello piccolo og Bob van Asperen orgel
Mótettan Wachet auf, 1. hluti - Johann Christoph Friedrich Bach - The Choir of Trinity College, Cambridge, stjórnandi: Richard Marlow
Kantatan Die Amerikanerin, seinni hluti -Johann Christoph Friedrich Bach - Magdalena Kozena mezzósópran og Musica
Antiqua Köln; stjórnandi: Reinhard Goebel
So oft ich meine Tobackspfeife, BWV 515 - Úr nótnabók Önnu Magdalenu Bach 1725 - Johannes-Christoph Happel bariton og Michael Behringer semball
Prelude to Einstein on the Fritz (S. e=mt2) - P.D.Q. Bach - The Greater Hoople Area Off-Season
Philharmonic; stjórnandi: Walter Bruno
Duetto Comico - Der Dichter und der Komponist - Wilhelm Friedrich Ernst Bach - Markus Schaefer tenór, Ekkehard Abele bassi og Ludger Rémy fortepianó.
Sinfonia f G-dúr, 3. kafli (Allegro) - Witnelm Friedrich Ernst Bach - Das Kleine Konzert; stjórnandi: Hermann Max