Yngsti sonur Johanns Sebastians var fjölhæfastur bræðranna á tónsmíðasviðinu og sá víðförlasti. Hann var aðeins 14 ára gamall þegar faðir hans lést og hélt þá áfram tónlistarnámi hjá bróður sínum Carl Philipp Emanuel í Berlín. Um tvítugt yfirgaf hann Norðaustur-Þýskaland, starfssvæði Bach-ættarinnar um tveggja alda skeið, og fluttist til Ítalíu. Hann varð aðstoðarorganisti við Dómkirkjuna í Mílanó 1760 og orðspor hans sem tónskálds barst víða um Evrópu, ekki síst eftir að hann brá enn útaf vana ættarinnar og hóf að semja óperur. Árið 1762 tók hann boði um að semja tvær óperur fyrir King's Theatre í London og upp frá því var höfuðborg hins stækkandi breska heimsveldis heimili hans. Frægðarsól Lundúna-Bachs steig hratt, hann varð tónlistarstjóri drottningarinnar, stóð fyrir fjölsóttum tónleikaröðum ásamt landa sínum Carl Friedrich Abel, fyrrum nemanda föður hans, og varð eftirlæti borgarbúa eins og Händel á undan honum. Þegar hinn átta ára gamli Mozart kom til Lundúna árið 1764 urðu þeir Johann Christian mestu mátar þrátt fyrir aldursmuninn og frægar eru sögur af því er þeir léku fjórhent á sembal, strákurinn sitjandi í fangi eldri kollega síns. Vinsældir Johanns Christians dvínuðu nokkuð á síðustu æviárum hans og fáum árum eftir andlát hans var hann flestum gleymdur. Eitt sinn mun Johann Christian hafa borið sig saman við hinn fræga bróður sinn og sagt: „Carl Philipp Emanuel lifir fyrir tónsmíðarnar, ég lifi á þeim." Þessi ummæli þóttu lengi til marks um að Johann Christian hefði látið ríkjandi smekk ráða för og að tónsmíðar hans ristu ekki ýkja djúpt. Núorðið blandast hinsvegar fáum hugur um að hann var eitt hæfileikaríkasta og áhrifamesta tónskáld snemmklassíska tímans.
Tónlistin í þættinum (eftir Johann Christian Bach):
Fuga, Uber die Buchstaben seines
Namens B.A.G.H - Marie-Claire Alain orge
Sembalstykki i Fd0r r3r N6tnab6k Onnu
Magdalenu Bach (1725) - Michael Behringer semball
Der Weise auf dem Lande (brot) - Markus Schafer tenór og Ludger Remy fortepian0
Salve Regina, 1. Pdttur (brot) -
Emma Kirkby sópran og L'Orfeo Barockorchester;
stjórnandi: Michi Gaigg
Konsert i Esdúr, oP.7 nr. 5,2. kafli - Anthony Halstead fortepianó/stjórnandi og The
Hanover Band
Flautukvartett i Dúr, oP. 19. nr. 2,Camerata Koln
1. kafli(brot)
Adriano in Seria, forleikur,l. kafli (brot) -he Academy of Ancient Music, stjórnandi: Simon
Standage
Pianósónata f Esdúr, oP. 17 nr. 3, - 1. kafli(brot)- Harald Hoeren fortepianó
Pianókonsert i Ddúr, K, 107 - 1. kafli(brot) - Murray Perahia pianó/stjórnandi. English Chamber Orchestra
Lucio Silla, forleikur, 2. kafli(brot)
Amadis des Gaules, Ariette et choeur
(brot) - The Hanover Band; stjórnandi: Anthony Halstead
Sinfónfa i g-moll, 1. kafli - The Academy of Ancient Music; stjórnandi: Simon Standage
Qui tollis peccata mundi, susciPe
deprecationem (úr Gloriu i G) - Kammerkórinn I Namur og hljómsveitin Les Agrémens; stjórnandi: Weiland Kuijken
lnfelice! ln van m'affanno úr La
Clemenza diScipione -Linda Perillo sópran og Das Kleine Konzert: stjórnandi: Hermann Max
--
Goldberg tilbrigði nr 25 - Johann Sebastian Bach - Glenn Gould, píanó