19:00
Sumartónleikar
Víkingur, Mahler kammersveitin, Thomas Adès ofl. á Lucerne hátíðinni

Hljóðritun frá tónleikum á Pulse, tónlistarhátíð undir stjórn Víkings Heiðars Ólafssonar sem haldin var í fyrsta sinn í maí sl. undir merkjum hinnar þekktu tónlistarhátíðar í Lucerne í Sviss.

Tónleikarnir fóru fram hinn 14. maí sl. og ásamt píanóleikaranum Víkingi Heiðari Ólafssyni og Mahler kammersveitinni komu fram sópransöngkonan Anna Dennis, Kór Mið-þýska útvarpsins og hljómsveitarstjórinn og tónskáldið Thomas Adès.

Á efnisskrá:

- Sinfónískt ljóð fyrir 100 taktmæla eftir György Ligeti.

- Píanókonsert í G-dúr eftir Maurice Ravel.

- ...quasi una fantasia... op. 21 nr. 1 György Kurtág.

- Credo fyrir píanó, kór og hljómsveit eftir Arvo Pärt.

- A Prophecy fyrir sópran, hljómsveit og kór op. 19 eftir Thomas Adès.

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.

Er aðgengilegt til 25. september 2026.
Lengd: 1 klst. 29 mín.
e
Endurflutt.
,