
Elsku Whitney
Bandaríska stórstjarnan Whitney Houston skaust fram á sjónarsviðið um miðjan níunda áratug síðustu aldar og varð á skömmum tíma einn af vinsælustu skemmtikröftum veraldar. Tónlistarferill hennar spannar rúman aldarfjórðung en hún lést árið 2012, 48 ára að aldri.
Í fjórum þáttum fjallar Berglind María Tómasdóttir um feril og stormasamt lífshlaup Whitney Houston, áhrif hennar og arfleifð.