19:20
PartyZone - Undir diskókúlunni
Party Zone Undir diskókúlunni 11. júlí

Það eiga allir einhverjar góðar og jafnvel trylltar minningar af dansgólfinu þar sem diskókúlan snýst. Við spilum dansmelli áratuganna og kyndum upp í minningum hlustenda. Við rifjum upp skemmtistaði, ákveðin ár eða gullaldartímabil þar sem dansgólfin voru troðfull af gleði og látum.

Þátturinn geymir dagskrárliði eins og Diskótvennuna, Dansárið er, Skemmtistað fortíðar, Veislustjórann og íslenska lagið. Að lokum er kokteill kvöldsins hristur fyrir hlustendur, nokkurra laga syrpa með lögum úr ýmsum áttum.

Diskókúlan snýst í Teitileiti 1 enn á ný á laugardagskvöldum, í þættinum PartyZone: Undir Diskókúlunni.

Dansslagarar fortíðar og nostalgía fyrir dansþyrsta hlustendur Rásar 2.

Í þætti kvöldsins heyrum við diskótvennuna, förum aftur til dansársins 1989 og sömuleiðis heimsækjum við skemmtistaðinn Thomsen sumarið 2001.

Lokahnykkurinn er síðan m.a. vel hristur kokteill kvöldsins, íslenska lagið og nýja lagið.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 40 mín.
,