07:03
Vínill vikunnar
FÍH 50 ára C&D

Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.

Vínill vikunnar er helgaður 50 ára afmælisplötu Félags íslenskra hljómlistarmanna sem kom út síðla árs 1982.

Í síðustu viku var fyrri plata afmælisalbúmsins undir nálinni, A og B hlið, og má segja að tónlistin hafi gefið nasasjón af íslenskri tónlistarhefð frá upphafi tuttugustu aldar fram á sjötta áratuginn. Á seinni plötunni, sem verður nú leikin, C- og D hliðar, er að finna tónlist frá upphafi íslenskrar rokksögu, eða frá sjöunda og áttunda áratug aldarinnar. Upptaka en frá tvennum tónleikum á Broadway í febrúar 1982.

C-hliðin hefst með fyrstu íslensku rokksveitinni, Hljómum, sem flytja lagið Fyrsti kossinn. Þá syngja Lúdó og Stefán Því ekki að taka lífið létt, Pops Wild Thing, Tempó True Love Ways, Náttúra Nymphenburger (East Of Eden), Ævintýri Summertime og Roof Tops Söknuð (Try A Little Tenderness) og loks flytur Trúbrot lagið To Be Grateful.

D-hliðin hefst með því að Mánar flytja lagið July Morning. Pónik og Einar flytja svo Beginnings, Þrumuvagninn lagið Í tilefni kvennaárs, Friðryk lagið Í kirkju og í lokin hljómar hluti af syrpu Brimklóar Rock 'n' Roll öll mín bestu ár, en syrpan komst ekki öll að í þættinum vegna plássleysis.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 51 mín.
e
Endurflutt.
,