23:35
Sama viðtalið um ESB
Baldvin ræðir við framkvæmdastjóra Samorku og SAF

Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti.

Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni: Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu?

Umsjón: Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime Plaza

Stjórn upptöku og samsetning: Helgi Jóhannesson

Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen og Baldvin Þór Bergsson

Grafík: Kolbrún Þóra Löve

Ljósmyndun: Ragnar Visage

ATH: Hægt er að horfa á alla þættina í sjónvarpshluta spilarans

Hvaða áhrif, ef einhver, hefði innganga í ESB á ferðamennslu og orkuiðnaðinn á Íslandi? Þeir Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, ræddu það í Sama viðtalinu um ESB.

Báðir lögðu þeir áherslu á mikilvægi EES samningsins og sögðu að óháð niðurstöðunni 29. ágúst ættu Íslendingar að sinna honum betur, m.a. með því að gæta hagsmuna sinna í Brussel.

Rætt var um evruna, ástæður þess að atvinnulífið er á móti ESB, tolla og margt fleira.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 27 mín.
e
Endurflutt.
,