Sýnishorn af því sem Svíar tefldu fram sem gestaþjóð Jazzahead í Bremen fyrr á þessu ári.
Við heyrum í þremur ólíkum hljómsveitum í þessari útsendingu sem Radio Bremen fangaði fyrir okkur á tónleikum hátíðarinnar. Þar á meðal er Hederosgruppen sem nýtur leiðsagnar hljómborðsleikarans Martins Hederos, Bitoi kvartettinn sem bassaleikarinn Cassius Lambert leiðir og tríóið sem hefur leikinn. Píanótrío Joels Lyssarides sem nýtur samleiks við bassaleikarann Alon Near og trommuleikarann Rasmus Svensson Blixt.
Öll lögin eru eftir píanistann Lyssarides.
Joel Lyssarides (1993) - Bortom Bergen
Joel Lyssarides (1993) - Mahabalipuram
Joel Lyssarides (1993) - Life in between
Joel Lyssarides (1993) - Rags shargi
Næst heyrum við áhugavert framlag hljómsveitarinnar Bitoi. Þetta er óvenjulegur kvartett í djassheiminum. Þrjár söngkonur og rafbassi Cassiusar Lamberts, sem einnig semur alla tónlist hópsins og texta, sem eru á tilbúnu tungumáli.
Auk bassaleikarans Lamberts heyrum við í söngkonunum Alexöndra Shabo, og systrunum Lydiu og Ellu Cronberg.
Cassius Lambert (1996) - Fly, fly
Cassius Lambert (1996) - HAI
Cassius Lambert (1996) - SE-RU-MA
Cassius Lambert (1996) - TI-RI-MA
Cassius Lambert (1996) - KE-TO-RO
Cassius Lambert (1996) - PA-SI-PA
Cassius Lambert (1996) - SEKOMITSE
Lokalag Bitoi kvartettsins var Sekomitse - og var eins og öll hin eftir bassaleikarann Cassius Lambert,. Auk hans heyrðum við í söngkonunum Alexöndra Shabo, og systrunum Lydiu og Ellu Cronberg. Gríðarlega áhrifamiklir tónleikar þessa listafólks á Jazzahead í Bremen vorið 2026. Hér var sungið á uppdiktuðu tungumáli sem Cassius Lambert hefur búið til fyrir hópinn og notar fuglahljóð sem grunn.
Nýjasta plata Bitoi heitir Sirkulu og kom út árið 2025. Hún er td fáanleg á Bandcamp.
Síðasti hópurinn sem við heyrum að sinni af framlagi Svía til stóru evrópsku jazzstefnunnar heitir í höfðuðið á hljómboðrsleikaranum Martin Hederos - Hederosgruppen, þó að aðrir meðlimir kvartettsins leggi líka til tónsmíðarnar. Fyrsta lagið er tam eftir trompetleikarnn Emil Strandberg sem blæs ásamt saxófónleikaranum Andreasi Sjögren. Það er svo trommarinn Konrad Agnas sem er fjórði maður á sviðinu
Emil Strandberg (1980) - Luftskepp
Martin Hederos (1972) - Kniven
Emil Strandberg (1980) - Molustoden
Josef Kallerdahl (1979) - It's a shame
Andreas Sjögren (20th cent.) - Här kommer en dikt jag skrer inatt
Konrad Agnas (1990) - Bismillah bebop
Martin Hederos lék á hljómborð, Emil Strandberg á trompet, Andreas Sjögrená saxófón og bassaklarinett og Konrad Agnas á trommur.
Þriðja hljómsveitin af þremur sænskumsem við fundum til í sumardjassröðina, en eins og áður kom fram var Hederosgruppen meðal þeirra hljómsveita sem Svíar tefldu fram þegar þeir voru gestaþjóð Jazzahead í Breman á Þýskalandi vorið 2026.
Er aðgengilegt til 24. september 2026.
Lengd: 1 klst. 32 mín.