09:03
Fram og til baka
Heimsmeistaramótið og hátíðir um land allt

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Umsjónarmenn Fram og til baka kynntu sér hátíðir á landinu og ræddu við Áskel Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóra Landsmóts hestamanna sem fer fram þessa helgina á Hólum í Hjaltadal. Þá fengu þau til sín söngdívurnar Selmu og Hönsu sem ræddu samstarfið í gegnum árin og sumardjassinn á Jómfrúnni.

Heimsmeistaramótið í fótbolta er á allra vörum þessa dagana og til þess að ræða fótboltann kíkti meðal annars Kári Tulinius, fótboltanörd, til þeirra í stúdíó sem hefur verið að skrifa skemmtilega fótboltapistla fyrir Guardian. Að lokum kíkti blaðamaðurinn Erla María Markúsdóttir við sem hefur fylgst grannt með heimsmeistaramótinu og rýndi meðal annars í töskusafn Erlings Haaland.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 3 klst. 17 mín.
,