Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Við fjölluðum um Kakalaþing, það ágæta árlega málþing fer fram í Kakalaskála í Skagafirði um helgina. Sem fyrr heldur Guðrún Ingólfsdóttir bókmenntafræðingur um þræði. Hún rabbaði svolítið um Sturlungu og Gerplu, og norræna goðafræði og vinnu – og aðeins um sjálfan Kakalann.
Forvitnast var um hugmyndir um að koma á laggirnar vinnuaðstöðu, verslun og sýningarrými fyrir listhandverk í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Halla Bogadóttir gullsmiður fékk þessa hugmynd fyrir tuttugu árum og vinnur nú að því að gera hana að veruleika.
Vilhjálmur Árnason heimspekingur hefur gefið út bókina Samræðusiðfræði; safn greina sem Vilhjálmur hefur skrifað um samtalið og samræðuna. Samræðan gerir kröfur um að bæði viðmælendum og viðfangsefnum sé sýnd tilhlýðileg virðing. Hann kom á Morgunvaktina.
Tónlist frá útsendingarlogg 2026-08-26
Dolly Parton - I will always love you.
Dolly Parton - Do I ever cross your mind.
Dolly Parton - Coat of many colors.
Kenny Rogers og Dolly Parton - You can't make old friends.
Bítlarnir - While my guitar gently weeps.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Heimsþing húmanista 2026 fór fram í Ottawa helgina 7.–9. ágúst undir yfirskriftinni „Humanism as Resistance“ eða Húmanismi sem andspyrna. Þar komu um 500 húmanistar alls staðar að úr heiminum. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir formaður Siðmenntar, félags siðrænna húmanista á Íslandi og Kristrún Ýr Einarsdóttir, athafnastjóri og húmanisti, sóttu þingið og sögðu okkur aðeins frá því og erindi húmanismans í heiminum.
Í lokaþættinum af Jeppaþjóðinni ræðir Elísabet Thea við Magnús Tuma, prófessor í jarðeðlisfræði, sem þessa dagana er við mælingar á gosstöðvum inn að Fjallabaki, um tengsl jeppa og jöklarannsókna.
Tónlist frá útsendingarlogg 2026-08-26
Parton, Dolly - 9 to 5.
Rósa Guðrún Sveinsdóttir - Fuglinn.
Jóhanna Vigdís Arnardóttir - Sigraðu fjöllin.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Þularkynnt tónlist
Útvarpsfréttir.
Forstöðumaður félagsmiðstöðvar í Reykjavík telur að sparnaður sem næst með uppsögnum leiði til meiri kostnaðar annars staðar í kerfinu.
Leiðsögumaður sem varð vitni að banaslysi austan við Stuðlagil á mánudag segir öryggi á ábótavant. Landeigandi vestan við gilið segir margt hafa verið gert til að auka öryggi ferðamanna.
Evrópusambandið þarf að gera breytingar á stækkunarferli sínu og tryggja að ný aðildarríki fylgi grundvallarreglum. Þetta segir stækkunarstjóri ESB. Aðildarviðræðum við Ísland væri hægt að ljúka á einu til tveimur árum.
Sænska lögreglan hefur handtekið annan mann vegna sverðaárásar í framhaldsskóla í Fager-sta. Sá hefur ekki tengsl við skólann.
Að minnsta kosti 14 ungbörn létust í eldsvoða á spítala í Islamabad í Pakistan. Aðeins einu barni var bjargað.
Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri segir stefnt að því að endurhæfingar- og öldrunarþjónusta, sem áður var á Kristnesspítala, verði komin í leiguhúsnæði í desember. Mikið rót hefur verið á starfseminni eftir að Kristnesspítali var rýmdur vegna myglu.
Yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA, fundaði ekki með Rússlandsforseta í fyrstu heimsókn sinni til Moskvu eftir að hann tók við embætti.
Ótal þekktir einstaklingar hafa minnst goðsagnarinnar Dolly Parton sem féll frá í gær. Þar á meðal eru allir núlifandi forsetar Bandaríkjanna.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Í ár var maður að nafni Daníel Sigurðsson skattakóngur Íslands. Hann greiddi 932 milljónir í fjármagnstekjuskatt í fyrra og var því með fjármagnstekjur upp á 4,3 milljarða króna.
Ástæðan fyrir þessum himinháu fjármagnstekjum og skattgreiðslum í fyrra er sú að Daníel seldi 70 prósenta hlut í fyrirtæki sem hann stofnaði. Þetta fyrirtæki heitir DS Lausnir og sérhæfir sig í útleigu og þjónustu við byggingarkrana sem notaðir eru til að reisa fasteignir.
Fyrirtækið sem keypti meirihluta í DS Lausnum heitir Fagkaup og er það í jafnri eigu hjónanna Boga Þórs Siguroddssonar og Lindu Bjarkar Ólafsdóttur.
Hvaða fyrirtæki er Fagkaup og hver er saga þess og eigenda þess? Farið er aftur til aldamótanna þegar Bogi stóð í deilum út af viðskiptum með Húsasmiðjuna og fjallað um hvernig veldi Fagkaupa hefur vaxið stöðugt í tvo áratugi með uppkaupum á byggingar- og iðnfyrirtækjum.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Pétur Grétarsson ræðir við Andrés Þór Gunnlaugsson gítarleikara um nýja plötu hans - Relocate, sem var að koma út hjá norsku útgáfunni Losen Records.
Þeir fara einnig yfir farinn veg Andrésar á langtímastefnumóti hans við gítarana og djassmúsíkina.
Tónlistin er öll eftir Andrés af nýju plötunni:
Relocate
Is it me, is it you
Tuesday morning coffee
Grace on high
Nico Moreaux leikur á kontrabassa og Magnús Trygvason Elíassen á trommur með Andrési sem mundar rafgítar, nælonstrengja kassagítar og pedal steel gítar á þessari plötu.
Elsti sonur Johanns Sebastians hlaut frábæra tónlistarmenntun frá blautu barnsbeini. Faðir hans kenndi honum hljóðfæraleik og tónsmíðar og samdi fyrir hann verk sem enn eru leikin bæði af nemendum og fullnuma hljóðfæraleikurum. Wilhelm Friedemann stundaði nám í stærðfræði, lögfræði og heimspeki í Háskólanum í Leipzig um nokkurra ára skeið áður en hann varð organisti í Soffíukirkjunni í Dresden árið 1733. Hann flutti sig um set árið 1746 og tók við organistastöðunni í Liebfrauen-kirkjunni í Halle (hann er stundum kallaður Halle-Bach). Átján árum síðar gafst hann upp á yfirboðurum sínum þar og gegndi engri fastri stöðu upp frá því. Síðustu æviár sín bjó hann í Berlín við síversnandi kost og lést að lokum örsnauður frá bjargræðislausri eiginkonu og dóttur. Wilhelm Friedemann var miklum tónlistargáfum gæddur og var álitinn fremsti organisti og spunameistari síns tíma. Hann spilaði þó ekki vel úr spilum sínum og er eitt af átakanlegustu dæmum tónlistarsögunnar um mann sem aldrei náði að virkja hæfileika sína til fullnustu. Tónlistin sem eftir hann liggur er þó afar áhugaverð og persónuleg. Hún ber vitni um frábæra þekkingu hans á kontrapunkti barokksins en var einnig fyrirboði um rómantíska tónlist nítjándu aldar.
Fuga a 3 soggetti, BWV 1080119 úr Kunst der Fuge) (brot) -Johann Sebastian Bach - Robert Hill semball
Sembalsónata i a-moll, F. nv8n l. kafli (Poco allegro) (brot) - Wilhelm Friedemann Bach - Christophe Rousset semball
PrelúdIa nr. 1, BWV 846 (brot) -Johann Sebastian Bach - Joseph Payne semball
Allemande, BWV 836 (brot) -Johann Sebastian Bach - Joseph Payne klavikord
Sinfónia I F-dúr, F. S7, l. kafli (Vivace) (brot) -Wilhelm Friedemann Bach -Akademie für Alte Musik Berlin
Lasset uns ablegen, F. 80, 1. kafli (brot) -Wilhelm Friedemann Bach -Rheinische Kantorei og Das Kleine Konzert;
stj6rnandi: Hermann Max
Wir, Ghristenleut -Wilhelm Friedemann Bach - Marie-Claire Alain orgel
Konsert f. tvo sembala I Fdúr, F. 10, 1. kafli (Allegro moderato) - Wilhelm Friedemann Bach - Attilio Cremonesisemball og Allessandro de Marchi semball
Triósónata f. 2 flautur og fylgirödd, F. 47, 3. kafli (Allegro assai) - Wilhelm Friedemann Bach - Valerie Balsea flauta, Jean-Pierre Pinet flauta, Hager Spaeter-Hanana selló og Blandine Rannou semball.
Konsert f. sembal og hljómsveit i e-moll, F . 43, 1. kafli (Allegretto) - Wilhelm Friedemann Bach -Michael Behringer fortepianó og Barokksveitin i Freiburg;stjórnandi: Gottfried von der Goltz
Pólónesa i d-moll, F.12/4 -Wilhelm Friedemann Bach - Harald Hoeren fodepianó
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Hamraborg Festival er árlegur, vikulangur fögnuður lista og samfélags í hjarta Kópavogs sem hefst á föstudag og er byggð upp í nánu samstarfi við nærsamfélagið. Við bregðum okkur í Náttúrusafn Kópavogs til að hitta þar tvö tónskáld, sem bæði eru meðal listamanna á Hamraborg Festival, þau Þórð Hallgrímsson og Ásu Önnu Ólafsdóttur, eða Asalaus.
Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor á Árnastofnun, hefur nýja pistlaröð í dag um íslenskuna okkar og um fornar og nýjar frændtungur hennar. Hann fer með okkur aftur á bronsöld og við heyrum um málin sem voru töluð í Tyrklandi þegar Trójuborg stóð með blóma. Í síðari hluta þáttar minnumst við svo Dolly Parton og hlýðum á nokkur lög eftir þá mögnuðu konu.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Myndu Íslendingar afsala sér fullveldinu með því að ganga í Evrópusambandið, eða er innganga einmitt besta leiðin til að tryggja raunverulegt fullveldi Íslands til framtíðar. Um þetta hafa verið skrifaðar ótal skoðanagreinar undanfarnar vikur í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhald aðildarviðræðna við ESB.
Í þætti dagsins ætlum við að reyna að skilja betur þetta hugtak, hvað það þýðir, og hvort að skilningur okkar á því hafi breyst frá því að Ísland varð frjálst og fullvalda ríki árið 1918.
Við spjöllum við Guðmund Jónsson prófessor í sagnfræði.
Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti.
Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni: Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu?
Umsjón: Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime Plaza
Stjórn upptöku og samsetning: Helgi Jóhannesson
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen og Baldvin Þór Bergsson
Grafík: Kolbrún Þóra Löve
Ljósmyndun: Ragnar Visage
ATH: Hægt er að horfa á alla þættina í sjónvarpshluta spilarans
Hvaða áhrif, ef einhver, hefði innganga í ESB á ferðamennslu og orkuiðnaðinn á Íslandi? Þeir Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, ræddu það í Sama viðtalinu um ESB.
Báðir lögðu þeir áherslu á mikilvægi EES samningsins og sögðu að óháð niðurstöðunni 29. ágúst ættu Íslendingar að sinna honum betur, m.a. með því að gæta hagsmuna sinna í Brussel.
Rætt var um evruna, ástæður þess að atvinnulífið er á móti ESB, tolla og margt fleira.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög
Nokkur vel valin lög
Lagalistinn:
Björk Guðmundsdóttir Tónlistarm. - The gate.
Hamrahlíðarkórinn - 13 Hjá lygnri móðu (1981).
Þórunn Lárusdóttir Leikkona ; RKÍ, Eyþór Gunnarsson - Kvöldsigling.
ADHD Hljómsveit - Ame.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Hljóðritun frá tónleikum á Pulse, tónlistarhátíð undir stjórn Víkings Heiðars Ólafssonar sem haldin var í fyrsta sinn í maí sl. undir merkjum hinnar þekktu tónlistarhátíðar í Lucerne í Sviss.
Tónleikarnir fóru fram hinn 14. maí sl. og ásamt píanóleikaranum Víkingi Heiðari Ólafssyni og Mahler kammersveitinni komu fram sópransöngkonan Anna Dennis, Kór Mið-þýska útvarpsins og hljómsveitarstjórinn og tónskáldið Thomas Adès.
Á efnisskrá:
- Sinfónískt ljóð fyrir 100 taktmæla eftir György Ligeti.
- Píanókonsert í G-dúr eftir Maurice Ravel.
- ...quasi una fantasia... op. 21 nr. 1 György Kurtág.
- Credo fyrir píanó, kór og hljómsveit eftir Arvo Pärt.
- A Prophecy fyrir sópran, hljómsveit og kór op. 19 eftir Thomas Adès.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.


Að loknum 6. lestri Völsunga sögu ræðir Ragnheiður Gyða Jónsdóttir við Ingu Huld Hákonardóttur um viðhorf til sifjaspella í aldanna rás(15,32 mín.)
Frumflutt 29.03.1993


frá Veðurstofu Íslands
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Heimsþing húmanista 2026 fór fram í Ottawa helgina 7.–9. ágúst undir yfirskriftinni „Humanism as Resistance“ eða Húmanismi sem andspyrna. Þar komu um 500 húmanistar alls staðar að úr heiminum. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir formaður Siðmenntar, félags siðrænna húmanista á Íslandi og Kristrún Ýr Einarsdóttir, athafnastjóri og húmanisti, sóttu þingið og sögðu okkur aðeins frá því og erindi húmanismans í heiminum.
Í lokaþættinum af Jeppaþjóðinni ræðir Elísabet Thea við Magnús Tuma, prófessor í jarðeðlisfræði, sem þessa dagana er við mælingar á gosstöðvum inn að Fjallabaki, um tengsl jeppa og jöklarannsókna.
Tónlist frá útsendingarlogg 2026-08-26
Parton, Dolly - 9 to 5.
Rósa Guðrún Sveinsdóttir - Fuglinn.
Jóhanna Vigdís Arnardóttir - Sigraðu fjöllin.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Myndu Íslendingar afsala sér fullveldinu með því að ganga í Evrópusambandið, eða er innganga einmitt besta leiðin til að tryggja raunverulegt fullveldi Íslands til framtíðar. Um þetta hafa verið skrifaðar ótal skoðanagreinar undanfarnar vikur í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhald aðildarviðræðna við ESB.
Í þætti dagsins ætlum við að reyna að skilja betur þetta hugtak, hvað það þýðir, og hvort að skilningur okkar á því hafi breyst frá því að Ísland varð frjálst og fullvalda ríki árið 1918.
Við spjöllum við Guðmund Jónsson prófessor í sagnfræði.
Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti.
Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni: Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu?
Umsjón: Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime Plaza
Stjórn upptöku og samsetning: Helgi Jóhannesson
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen og Baldvin Þór Bergsson
Grafík: Kolbrún Þóra Löve
Ljósmyndun: Ragnar Visage
ATH: Hægt er að horfa á alla þættina í sjónvarpshluta spilarans
Hvaða áhrif, ef einhver, hefði innganga í ESB á ferðamennslu og orkuiðnaðinn á Íslandi? Þeir Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, ræddu það í Sama viðtalinu um ESB.
Báðir lögðu þeir áherslu á mikilvægi EES samningsins og sögðu að óháð niðurstöðunni 29. ágúst ættu Íslendingar að sinna honum betur, m.a. með því að gæta hagsmuna sinna í Brussel.
Rætt var um evruna, ástæður þess að atvinnulífið er á móti ESB, tolla og margt fleira.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Hnefaleikakappinn Emin Kadri Eminsson er á leiðinni til Finnlands þar sem hann mætir hinum rússneska Nikita Stelmakh. Emin er atvinnumaður í íþróttinni og hefur áður komið í Morgunútvarpið og lýst því yfir að hann stefni á toppinn. Við fengum hann til okkar og könnum hvernig gengur en leiðin á toppinn er löng og ströng.
Fólk virðist hafa mikið óþol fyrir notkun gervigreindar í auglýsingum ef marka má viðbrögð við nýrri auglýsingu Mjólkursamsölunnar fyrir ostinn Gotta. Netverjar sökuðu MS um að sniðganga íslenska hönnuði og nota gervigreind við framleiðslu auglýsingarinnar. Í svari MS við fyrirspurn Morgunútvarpsins kemur meðal annars fram að gervigreind hafi verið notuð samhliða annarri tækni við gerð auglýsinganna en ekki komið í stað skapandi fagfólks. Auglýsingin var engu að síður tekin úr umferð. Selma Rut Þorsteinsdóttir, formaður SÍA, kom til okkar og ræddi málið í stærra samhengi.
Við héldum áfram að ræða um þjóðaratkvæðagreiðsluna um viðræður við ESB og fáum nú að heyra raddir yngri kjósenda. Kristrún Ágústsdóttir, frá Já til að sjá og Hnikarr Bjarmi Franklínsson frá Ungum gegn ESB aðild komu til okkar.
Börn niður í níu og tíu ára aldur eru komin í meðferð við átröskunum að sögn Elínar Vigdísar Guðmundsdóttur, formanns SÁTT – hagsmunasamtaka um átraskanir. Þetta kom fram í Dagmálum Morgunblaðsins í gær. Hún segir að fullorðnir þurfi meðal annars að líta til eigin hegðunar og orðræðu um líkama og útlit. Elín Vigdís kom til okkar.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Gæðaþrenna vikunnar var af fyrstu plötu Júníus Meyvant , Floating Harmonies sem er 10 ára gömul á þessu ári. Ljótu Hálfvitarnir komu í heimsókn og sögðu frá nýju lagi um ísbíl. Fjallað var um Dolly Parton og snákinn Slash.
DÁTAR – Leyndarmál
JÚNÍUS MEYVANT – Neon Experience
DOLLY PARTON – Coat Of Many Colours
ÁSGEIR TRAUSTI EINARSSON – Heartbeat
BUBBI MORTHENS – Ég er tilbúinn
BERNDSEN & BUBBI – Úlfur Úlfur
BRUCE SPRINGSTEEN – Born to Run
KING GIZZARD AND THE LIZARD WIZARD – Hate Dancin'
TAME IMPALA – Loser
OASIS – Don't Look Back In Anger
THE JESUS & MARY CHAIN – Sometimes Always
NÝDÖNSK – Alelda
JÚNÍUS MEYVANT – Gold Laces
KLARA EINARSDÓTTIR – Ef hann myndi
DOMINIC FIKE – Babydoll
DIANA ROSS & THE SUPREMES – You Keep Me Hangin' On
VANILLA FUDGE – You Keep Me Hangin' On [Short Version]
THE FLAMING LIPS – Do You Realize?
SYCAMORE TREE – All Tangled Up
ALDOUS HARDING, HAWKLINE & H. – Venus in the Zinnia
THE REVIVALISTS – Heart Stop
TWEETY – Gott Mál
EMILÍANA TORRINI, GREININGARDEILDIN & BOGOMIL FONT – Þú stendur alltaf með mér
JÚNÍUS MEYVANT – Signals
RICK SPRINGFIELD – Jessie's Girl
ATLI DAGUR STEFÁNSSON – So Long
FONTAINES D.C. – Marianne
GARBAGE – I Think I'm Paranoid
LENNY KRAVITZ – Always on the Run
GUNS N' ROSES – Sweet Child O' Mine
TEMPER CITY – Self Aware
KAISER CHIEFS – Ruby
STEINUNN JÓNSDÓTTIR – Spóla til baka
THE CORAL – In the Morning
RÁS 2 STEF 2023 – RÁS 2 - STÖÐUTÁKN E (108 BPM KEY_F#)
HIPSUMHAPS – Meðal mannsins (þjóðsöngurinn)
B-52'S – Roam
C + C MUSIC FACTORY - Things That Make You Go Hmmmm

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Forstöðumaður félagsmiðstöðvar í Reykjavík telur að sparnaður sem næst með uppsögnum leiði til meiri kostnaðar annars staðar í kerfinu.
Leiðsögumaður sem varð vitni að banaslysi austan við Stuðlagil á mánudag segir öryggi á ábótavant. Landeigandi vestan við gilið segir margt hafa verið gert til að auka öryggi ferðamanna.
Evrópusambandið þarf að gera breytingar á stækkunarferli sínu og tryggja að ný aðildarríki fylgi grundvallarreglum. Þetta segir stækkunarstjóri ESB. Aðildarviðræðum við Ísland væri hægt að ljúka á einu til tveimur árum.
Sænska lögreglan hefur handtekið annan mann vegna sverðaárásar í framhaldsskóla í Fager-sta. Sá hefur ekki tengsl við skólann.
Að minnsta kosti 14 ungbörn létust í eldsvoða á spítala í Islamabad í Pakistan. Aðeins einu barni var bjargað.
Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri segir stefnt að því að endurhæfingar- og öldrunarþjónusta, sem áður var á Kristnesspítala, verði komin í leiguhúsnæði í desember. Mikið rót hefur verið á starfseminni eftir að Kristnesspítali var rýmdur vegna myglu.
Yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA, fundaði ekki með Rússlandsforseta í fyrstu heimsókn sinni til Moskvu eftir að hann tók við embætti.
Ótal þekktir einstaklingar hafa minnst goðsagnarinnar Dolly Parton sem féll frá í gær. Þar á meðal eru allir núlifandi forsetar Bandaríkjanna.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Doddi stjórnaði Popplandinu í dag, Ólafur Kristján Guðmundsson söngvari hljómsveitarinnar hOFFMAN mætti í spjall með nýtt lag.. Við fengum litla en huggulega Dolly Parton messu.
Doddi sagði líka frá því þegar óprúttnir aðilar reyndu að ná af honum peningum á meðan hann var í útsendingu með SMS-i en skatturinn stoppaði það af.
Svo má ekki gleyma Yeah deginum sem við ætlum að halda hátíðlegan á föstudaginn.
Popplisti dagsins
Bang Gang - Sleep.
HAUSST - Engin önnur.
Almost Monday - No more regrets.
GARBAGE - Stupid girl.
NIRVANA - Lithium.
Soup Dragons - I'm free.
Kravitz, Lenny - I belong to you.
MUSE - Hysteria.
Dean, Olivia - Nice To Each Other.
The Wannadies - You and me song.
DOLLY PARTON - Jolene.
Parton, Dolly - I will always love you.
Parton, Dolly - I will always love you.
DOLLY PARTON - Here You Come Again.
DOLLY PARTON - 9 to 5.
MANIC STREET PREACHERS - A Design for Life.
Geðbrigði - Móðir vor.
Klara Einarsdóttir - Ef hann myndi.
HOFFMAN - Royal Face.
HOFFMAN - Kolkrabbinn.
Warmland - Violet Dreams.
THE HOUSEMARTINS - Five Get Over Excited (Fun Fun Fun) (80).
Los Bomboneros y sus bombasticos - Bassanótt.
Billy Ocean - Get Outta My Dreams, Get Into my Car.
BJÖRK - All Is Full Of Love.
ULTRA NATE - Free.
Angel, Imael, HUGEL, Ultra Nate - Movin' To The Sun.
DIZZEE RASCAL FT. CALVIN HARRIS - Dance Wiv Me (Spilar á Airwaves 2016).
LEVEL 42 - Something About You (80).
Todmobile - Ég geri allt sem þú vilt.
Shaggy, Alig - Julie.
MT Jones - I Don't Understand.
Dream Academy, The - Life in a northern town.
Purrkur Pilnikk - Læknir og svín

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Líkt og kom fram í þættinum í gær þá er fyrirhugað að innheimta veggjalda á nýjum vegi yfir Hornarfjarðarfljóti muni kosta 1.500 krónur en gjaldið mun síðan lækka eftir því sem ferðum fjölgarHjalti Þór Vignisson bæjarstjóri Hornarfjarðar sem við ræddum við í gær hefur af þessu miklar áhyggjur sérstaklega fyrir íbúa á svæðinu og hann spyr hvers vegna gjaldið er þrisvar sinnum hærra en áætlað veggjald verður yfir Ölfusárbrú. Við leituðum svara í dag hjá Guðmundi Val Guðmundssyni sem er framkvæmdastjóri þróunarsviðs hjá Vegagerðinni.
Mál málanna í þessari viku fyrir utan þjóðaratkvæðagreiðsluna framundan er uppsagnirnar sem kynntar voru í gær hjá Reykjavíkurborg. Í þeirri umræðu hefur Kári Sigurðsson, formaður Sameykis látið til sín taka og í morgun birti Kári færslu á FB þar sem hann gagnrýnir m.a. að Sameyki hafi enn ekki fengið svör frá Reykjavíkurborg um rökstuðning fyrir uppsögnum sem hófust fyrr í sumar. Hann segir erfitt að skilja hvernig hægt sé að taka stórar ákvarðanir hratt, en á sama tíma taki margar vikur að svara spurningum stéttarfélagsins um réttindi og stöðu þeirra sem misst hafa vinnuna. Þá gerir hann einnig uppsagnir skólaliða að umtalsefni, dregur í efa þær skýringar sem borgaryfirvöld hafa gefið og varar við því að fleiri verkefni í grunnþjónustu borgarinnar kunni að verða boðin út á næstu misserum. Við ræddum þessa stöðu, samskipti Sameykis við Reykjavíkurborg, áhrif aðgerðanna á félagsmenn og hvað Kári telur að sé fram undan.
Um áramótin taka í gildi umfangsmiklar breytingar á heilbrigðiseftirliti landsins þegar verkefni færast frá sveitarfélögum til ríkisins. En hverju þarf að huga að áður en það gerist, hvaða verkefni verða eftir og hvernig má koma í veg fyrir að mikilvæg þekking tapist úr sveitarfélögum við tilfærsluna. Um það ríkir mikil óvissa. Sigrún Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri heilbrigðisnefndar Suðurlands, var á línunni.
Þrír dagar eru í að þjóðin greiði atkvæði um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný eður ei. Mikill hiti hefur verið í umræðunni í tengslum við þessi mál og fyrir suma hafa þær verið alveg óskiljanlegar þar sem lykilhugtök og fyrirbæri hafa verið að flækjast fyrir. Í dag ætlum við að fá svar við spurningunni “hvað er EES-samningurinn?”. Dr. Gunnar Þór Pétursson, forseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík, kom til okkar.
Við ræðum enn frekar þessar umfangsmiklu breytingar á stjórnskipulagi velferðarsviðs og skóla og frístundarsvið sem Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í gær. Breytingarnar hafa í för með sér að 86 starfsmenn missa störf sín eða færast til innan kerfisins, fjórar miðstöðvar og fjöldi starfseininga verða lagðar niður og borgin áætlar allt að 900 milljóna króna hagræðingu á ári. En gagnrýnendur segja breytingarnar illa undirbúnar og óttast að nærþjónusta í hverfunum veikist. Björg Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Viðreisnar og formaður velferðarráðs, kom til okkar.
Í gær bárust þær fregnir að risi í tónlistarheiminum væri falinn frá. Dolly Parton væri látin ríflega áttræð. Við fengum Árna Matthíasson sérfræðing Fréttastofunni til okkar að ræða líf og tónlistarferil þessarar einstöku konu.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Siggi Gunnars minnist Dolly Parton.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Umsjón: Andrea Jónsdóttir.