13:00
Evrópa fyrr og nú

Síðasti þáttur þáttaraðarinnar Evrópa fyrr og nú.

Sagt hefur verið að ekki þýði að velta heimspekilegum vandamálum fyrir sér eftir Auswitz eftir útrýmingar Þjóðverja á Gyðingum. Eftir að hafa barist á banaspjóti í tvígang á öldinni sem er að líða tóku Evrópumenn sig til og stofnuðu Evrópubandalag sem í dag heitir Evrópusamband. Friður hefur ríkt í vesturhluta álfunnar í hálfa öld. Víst er að sögunni er ekki lokið þó að þekktur sagnfræðingur hafi komist svo að orði. Hvort Evrópa verður að einu ríki eða ekki skiptir í sjálfu sér ekki máli á meðan velsæld og friður ríkir.

Ágúst Þór Árnason gerði þættina árið 1994.

Viðmælendur hans í lokaþættinum eru:

Guðmundur Hálfdánarson

Vilhjálmur Árnason

Karólína Eiríksdóttir

Guðmundur Jónsson

Gísli Sveinn Loftsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 42 mín.
e
Endurflutt.
,