Árið með Gísla Marteini
Sérstök áramótaútgáfa Vikunnar með Gísla Marteini þar sem góðir gestir gera upp árið sem er að líða. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Gestir þáttarins voru þau Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Þorlákur Kristinsson Morthens (Tolli) og Ari Eldjárn. Prins Póló og Hjálmar héldu uppi stemningunni með frábærum tónum.
Gísli Marteinn fór yfir helstu Fréttir Vikunnar og Berglind Pétursdóttir kenndi landanum að græða peninga á auðveldan máta.

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.