Árið með Gísla Marteini
Sérstök áramótaútgáfa Vikunnar með Gísla Marteini þar sem góðir gestir gera upp árið sem er að líða. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Gestir þáttarins að þessu sinni voru þau Birta Líf Kristinsdóttir, Jakob Birgisson og Halldóra Geirharðsdóttir.
Gísli Marteinn fór yfir helstu Fréttir Vikunnar og Berglind Pétursdóttir plataði nokkra pólitíkusa í fluglínuna.
Söngkonan Una Schram lokaði þættinum með frumflutningi á laginu Crush.

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.