Í gær samþykkti Alþingi frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð. Brottvísunarstöðinni er ætlað að hýsa útlendinga sem vísa á úr landi. Henni verður fundið húsnæði á Suðurnesjum en lögin taka gildi 1. Desember. Frumvarpið hefur verið gagnrýnt, umfram allt fyrir það að börn skuli vistuð í lokuðu úrræði. En í þinginu var nokkur samhljómur, 42 þingmenn kusu með en restin sat hjá. Eiríkur Örn Norðdahl, rithöfundur, situr hins vegar ekki hjá í pistli dagsins.
Við beinum sjónum okkar svo aftur að ástinni á tímum Tinder og annarra snjalltækja ástarlífsins. Snjólaug Lúðvíksdóttir uppistandari er viðmælandi Lóu í þætti dagsins.
Birt
10. júní 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lestin
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.