Midnight Sun fær krufningu, sagnfræðingurinn Marc Bloch
Lagið Midnight Sun með Zöru Larsson kom út í fyrra á samnefndri plötu, en nýtur enn þvílíkra vinsælda þetta sumarið. Við kryfjum þetta lag sænsku poppprinsessunar undir dyggri leiðsögn Friðriks Margrétar Guðmundssonar.
Svo fáum við pistil sendan með flugi frá París, Einar Már Jónsson, rithöfundur, segir frá merkum manni. Marc Bloch var afkastamikill fræðimaður en á miðjum aldri tók hann svo þátt í frönsku andspyrnuhreyfingunni. Hann á sér því merka ævi sem Einar Már rekur í þætti dagsins.
Birt
18. júní 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lestin
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.