Pólitískt ofbeldi í Frakklandi, Rembihnútur Einakrónu
Frakkland er á suðupunkti vegna andláts Quentin Deranque sem lést í slagsmálum milli hægri- og vinstrisinnaðra aktívista. Við sökkvum okkur ofan í frönsk stjórnmál með Einari Má Jónssyni sem hefur búið þar í landi og fylgst með pólitíkinni undanfarin 60 ár.
Við spjöllum svo við forsprakka hljómsveitarinnar Einakrónu, Björk Magnúsdóttur, en á dögunum kom út fyrsta plata sveitarinnar, Rembihnútar. Björk byrjaði að setja tónlist inn á Soundcloud fyrir nokkrum árum til að geta spilað hana auðveldar fyrir sig sjálfa. Þáverandi umsjónarmenn útvarpsþáttarins Ólátagarður rákust á hana á netvafri og byrjuðu að spila hana á Rás 2.
Birt
24. feb. 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lestin
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.