Lestin

Skarsgård-leikarafjölskyldan, ástarbækur, Kabarett

Um þessar mundir sjá í kvikmyndahúsum þrjár myndir með þremur mismunandi Skarsgård í aðalhlutverkum. Hinn 74 ára Stellan leikur í norsku óskarsmyndinni Affeksjonsverdi, elsti sonur hans Alexander leikur í BDSM-homma-rómantíkinni Pillion og annar sonur, Bill, leikur í spennumynd leikstjórans Gus Van Sant, Dead Man's Wire. Reyndar eru allt í allt sex synir Stellans Skarsgård virkir í leiklistinni. Við forvitnumst um þessa miklu leikarafjölskyldu.

Ástin er formlega orðinn faraldur. Eiríkur Örn Norðdahl fjallar um það hvernig ástarsagan, það sem á ensku er kallað romance novel, er smám saman leggja undir sig heiminn.

Og svo kíkjum við á Kabarett í Þjóðleikhúskjallaranum.

Leikhópur ókunnuga fólksins í leikstjórn Bjarts Örns Bachmann frumsýnir Kabarett næstkomandi föstudag. Söngleikurinn er byggður á leikriti sem er byggt á endurminningum frá Berlinarárum ungs rithöfundar. Weimar lýðveldið er við það líða undir lok, Adolf Hitler er vinsæll pólitíkus, hægrimenn og vinstrimenn berjast á götum úti, samtímis dunar jazzinn í klúbbum borgarinnar.

Birt

17. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,