Lestin

Minningar um Sókrates, Grammy-verðlaunahafinn Laufey

Íslendingar komust ekki á verðlaunapalla á Evrópumeistaramótina í handbolta sem lauk í gær en Grammy-verðlaunin voru haldin í gærkvöldi, og þar var Íslendingur sem sigraði. Laufey Lín og platan hennar Matter of Time var valin besta platan í flokki hefðbundinnar dægurtónlistar. Laufey vakti athygli fyrir þakkarræðu um tónlistarkennslu.

Á fimmtu öld fyrir krist var uppi í Grikklandi maður sem er í hugum flestra hálfgerð frummynd heimspekingsins. Sókrates var tötrum klæddur meinlætamaður sem hélt til á torgum Aþenu og tók þar fólk tali. Hann spurði það spurninga um hluti sem það átti vita, en sneri því í hring, og sannfærði það fljótt um í raun vissi það lítið sem ekkert. Hann var kaldhæðinn og ögrandi talaði um frummyndir og hellakenningar, og var lokum dæmdur til dauða af samborgurum sínum. Þessa persónu þekkjum við Íslendingar fyrst og fremst í lýsingu nemanda hans Platóns, En Platón er ekki eini sem skrifaði um Sókrates. í haust kom út í fyrsta skipti á íslensku, bók sem nefnist Minningar um Sókrates eftir forngríska sagnaritarann Xenófón. Við ræðum við Hjalta Snæ Ægisson, sem þýðir og gefur út bókina.

Frumflutt

2. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,