Slúður getur verið góður veruleikaflótti á erfiðum tímum. Anna Marsý spjallar við Doktor slúður, Grétu Bergrúnu Jóhannesdóttur - doktor í félagsfræði - um tilgang og virkni slúðursagna.
Við hringjum svo til Minneapolis í Bandaríkjunum sem er orðið að hálfgerðri púðurtunnu eftir tvö morð útlendingaeftirlitsins ICE á almennum borgurum á undanförnum vikum. Við ræðum við Íslending sem býr i borginni, Karvel Ágúst Schram, um mótmæli og samstöðu borgarbúa.
Birt
28. jan. 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lestin
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.