Lestin

Nýr samfélagsmiðill og tónlistin í Ormstungu

Hvers vegna búa til nýjan samfélagsmiðil? Hvað er hinum? Og hvað er netinu? Una Schram ræðir við stofnanda Perfectly Imperfect, samfélagsmiðils sem ætlar sér bjarga okkur frá netinu.

Söngleikurinn Ormstunga var frumsýndur síðastliðinn laugardag í Þjóðleikhúsinu. Sýningin, sem er byggð á Gunnlaugs sögu Ormstungu, varð upphaflega til sem nemendaleikrit Hafsteins Níelssonar. Hafsteinn og Óliver Þorsteinsson, handrits-, texta-, og tónlistarhöfundar leikritsins, ræddu við Jóhannes Bjarka Bjarkason um tónlistina í verkinu og líkindin milli kveðskapar og rapps.

Og svo heyrum við pistil eftir Hallveigu Kristínu Eiríksdóttur sem fjallar um fyrstu reglubók handboltans og föður íþróttarinnar, hinn danska Holger Nielsen.

Frumflutt

27. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,