Undanfarið hefur mikið verið rætt um þöggun og skort á samræðu milli fólks með ólíkar skoðanir. Lestin ætlar að bregaðst við ákallinu um aukið samtal.
Internetið og samfélagsmiðlar eru slæmur vettvangur fyrir pólitískt samtal, en í þætti dagsins mætast augliti til auglitis tvær manneskjur sem hafa gert sig gildandi í umræðum á samfélagsmiðlinum X - og hafa mjög ólíkar pólitískar skoðanir. Fríða Þorkelsdóttir, sem segist vera sósíalisti, og Sverrir Helgason, sem kallar sjálfan sig hægri-öfgamann, setjast saman inn í hljóðver og ræða saman um skoðanir sínar.
Birt
22. sept. 2025
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lestin
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.