Orri Guðmundsson er tvítugur kvikmyndagerðarmaður í námi í Listaháskóla Íslands. Hann er að taka þátt í Sprettfisk, keppni á Stockfish hátíðinni, og framlagið hans er heimildarmynd um Guðmund Emil Jóhannsson. Myndin heitir Íslenskur Herkúles og veitir innsýn í hversdagsleika Gumma Emil. En hvernig er að gera mynd um manneskju sem hefur nú þegar myndað lífið sitt og birt það á netinu?
Svo flytjum við samtal við Björn Þór Vilhjálmsson, kvikmynda- og bókmenntafræðing, um Óskarsverðlaunamyndina One Battle After Another.
Birt
23. mars 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lestin
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.