Tónleikur

Leos Janácek

Í þættinum í dag mun tékkneska tónskáldið Leos Janácek verða kynnt til sögunnar og fluttur eftir hann strengjakvarett nr. 2. Hann var uppi á árunum 1854-1928 og varð helst frægur fyrir óperur sínar á meðan hann lifði. Hann samdi þó talsvert af kammertónlist, þar á meðal tvo strengjakvartetta seint á ævinni. Hann öðlaðist fyrst viðurkenningu sem tónskáld í heimalandi sínu eftir sextugt þegar ópera hans Jenufa var frumsýnd, en áður hafði hann unnið fyrir sér sem organisti og kennari, auk þess sem hann rannsakaði þjóðlagatónlist Moravíu,sem var heimahérað hans. Hann velti fyrir sér tónfalli og hryn tónlistarinnar og þessara tveggja þátta við tungumálið.

Kvartettinn sem flytur strengjakvartett Janáceks er Pacifica-kvartettinn sem fékk Grammy-verðlaunin fyrir skemmstu, en annar fiðluleikari hans er Sigurbjörn Bernharðsson. Auk þess verða flutt tvö önnur verk eftir sama tónskáld: Conte Pohádka, eða ævintýri fyrir selló og píanó, flutt af Bryndísi Höllu Gylfadóttur og Eddu Erlendsdóttur og lítið píanóstykki sem heitir Minning, flutt af Alain Planés.

Birt

24. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Tónleikur

Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.

Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir

Áður á dagskrá veturinn 2008-2009

Þættir

,